Áríðandi fyrir félagsmenn !

Af gefnu tilefni viljum við benda félagsmönnum GKG að ef þeir hafa áhuga á að dreifa greiðslum félagsgjalda þurfa þeir að hafa samband í þjónustunúmer Kreditkorta í síma 550-1500 og óska eftir að skipta greiðslum með þeim hætti sem hentar hverjum og einum, í allt að 12 mánuði.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á kreditkort@kreditkort með beiðni um greiðsludreifingu. Þar þarf að koma fram nafn og kennitala viðkomandi og fjöldi mánaða sem greiðslan á að dreifast yfir.

Innheimtuseðlar eru greiðsluseðlar og skuldfærast því ekki sjálfvirkt á kort félagsmanna. Hægt er að greiða seðlana í heimabanka ef ekki er óskað eftir greiðsludreifingu.