Forgjafarnefnd GKG hefur nú lokið við að endurskoða forgjöf GKG meðlima.

Farið var yfir lista sem GSÍ sendir frá sér og gerðar breytingar á forgjöf kylfinga.  Samtals lækkaði forgjöf hjá 316 meðlimum en 27 kylfingar frá hækkun á sína forgjöf.  Búið er að senda GSÍ listann með breytingunum og má gera ráð fyrir að breytingin verði komin inn á golf.is á næstu dögum.

Í forgjafarnefnd sitja :  Kjartan Bjarnason formaður, Sæmundur Melstað, Heimir Guðjónsson og Bergsveinn Þórarinsson.