Forgjafarnefnd GKG hefur nú lokið við að endurskoða forgjöf GKG meðlima.
Farið var yfir lista sem GSÍ sendir frá sér og gerðar breytingar á forgjöf kylfinga. Samtals lækkaði forgjöf hjá 316 meðlimum en 27 kylfingar frá hækkun á sína forgjöf. Búið er að senda GSÍ listann með breytingunum og má gera ráð fyrir að breytingin verði komin inn á golf.is á næstu dögum.
Í forgjafarnefnd sitja : Kjartan Bjarnason formaður, Sæmundur Melstað, Heimir Guðjónsson og Bergsveinn Þórarinsson.