Aron Snær Júlíusson, landsliðmaður úr GKG keppir á Evrópumóti áhugakylfinga í Hollandi, en þetta mót er eitt allra sterkasta mótið í heiminum meðal áhugakylfinga. Sigur á mótinu gefur m.a. þátttökurétt á Opna breska meistaramótið.

Ásamt Aroni Snæ keppa Bjarki Pétursson úr GB og Gísli Sveinbergsson úr GK. Mótið hefst á miðvikudag og fer það fram á Royal Hague Golf & Country Club, í Hollandi.

Alls eru leiknar 72 holur á fjórum keppnisdögum og komast 60 efstu í gegnum niðurskurðinn að loknum þriðja keppnisdeginum.

Það er að miklu að keppa á þessu móti. Sigurvegarinn fær keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á Carnoustie í júlí á þessu ári.

Þetta er í 31. skipti sem mótið fer fram en það hefur ekki farið fram í Hollandi frá árinu 1986 þegar það fór fyrst fram.

Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti. Má þar nefna Rory McIlroy, Sergio Garcia, Victor Dubuisson og Stephen Gallacher.

Alfie Plant frá Englandi sigraði á þessu móti í fyrra þegar það fór fram á Walton Heath vellinum. Plant hafði þar betur í bráðabana gegn ítölsku kylfingunum Luca Cianchetti og Stefano Mazzoli. Cianchetti hafði titil að verja á þessu móti í fyrra. Plant lék því á Opna breska meistaramótinu í fyrra á Royal Birkdale þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari í keppni áhugakylfinga – og fékk Silfurskjöldinn.

Royal Hague er einn af topp 5 völlum Evrópu og einn af 100 bestu golfvöllum heims. Þetta er strandvöllur og verða án efa krefjandi aðstæður fyrir keppendur.

Hægt er að fylgjast með stöðunni hér.

Heimild: golf.is