Félagmsenn! Minnum á aðalfundinn á mánudaginn 26. nóvember kl 20:00 í Stjörnuheimilinu. Sjá fyrri frétt:
Aðalfundur GKG árið 2007 verður haldinn mánudaginn 26. nóvember næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Stjörnuheimilinu við Ásgarð (fyrir aftan sundlaugina og íþróttahúsið) í Garðabæ og hefst stundvíslega klukkan 20:00. Dagskrá er með hefðbundnu aðalfundarsniði, sjá nánar hér fyrir neðan. Allir félagar GKG hvattir til að mæta.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
- Fundarstjóri og fundarritari kosnir
- Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
- Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt
- Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu
- Kosning formannst til eins árs
- Kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára og þriggja varamanna til eins árs
- Kosning tveggja endurskoðenda
- Önnur mál
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Stjórn og starfsfólk GKG