About Agnar Már Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Agnar Már Jónsson has created 580 blog entries.

Siggi vert hættir hjá GKG

Nú fyrir helgi tilkynnti Siggi vert okkur að vegna persónulegra ástæðna muni hann ekki geta haldið áfram veitingarekstrinum hjá GKG. Þetta er mikill missir fyrir félagið. Siggi lyfti þessari þjónustu upp á allt annað plan þegar hann tók við á sínum tíma, þrátt fyrir aðstöðu sem var vægast sagt takmörkuð. […]

Dómaranámskeið á vegum GSÍ

Árlegt héraðsdómaranámskeið GSÍ verður haldið í næsta mánuði.

Mikilvægt er að allir golfklúbbar hafi yfir dómurum að ráða og því nauðsynlegt að efla vitund félagsmanna fyrir gildi þess að klúbburinn hafi menntaða golfdómara. Um leið má minna á að nýjar golfreglur tóku gildi um síðustu áramót og því er þetta gott […]

Óheimilt að fara inn á vinnusvæði verktaka Íþróttamiðstöðvarinnar

Kæru félagar,
Töluvert hefur borið á því að meðlimir hafa verið að taka skoðunarferð um Íþróttamiðstöðina enda spenningurinn mikill núna á lokametrunum. Við verðum þó að benda ykkur á það að slíkt er stranglega bannað. Íþróttamiðstöðin er verkstaður og enginn má fara þar um án leyfis verktaka.
Það stefnir allt í það […]

Toggi kominn með alþjóðardómararéttindi

Þorgrímur Björnsson, Toggi, gerði sér ferð til St Andrews á dögunum og lauk þar með prýði prófi sem alþjóðardómari.

Dómarar með alþjóðleg réttindi (R&A referee eða alþjóðadómarar) eru allir þeir landsdómarar sem lokið hafa dómaraprófi frá R&A í samræmi við kröfur þeirra. Alþjóðadómari hefur réttindi til að dæma í öllum innlendum […]

Kórinn þétt setinn

Kæru félagar,

Nú í vor virðist áhugi félagsmanna á að koma sér í gott golf form fyrir sumarið meiri en nokkru sinni áður. Kvöldnámskeiðin sem við bjóðum upp á fyllast jafn fljótt og þau eru auglýst, eitthvað er þó laust í hádegisnámskeiðum. Vissulega er framangreint ánægjuleg þróun en hefur þann ókost […]

Ertu laghent/ur … viltu taka þátt í fyrsta gofherma móti GKG á St Andrews Old Course???

Nú kemur að þeirri stund kæru félagsmenn að við fáum neðri hæð Íþróttamiðstöðvar GKG afhenta. Þá bíður okkar að setja upp og smíða búr fyrir golhermana og ganga frá ýmsum þáttum varðandi rafmagnið.

Okkur vantar laghenta einstaklinga sem geta:

  • Smíðað (undir leiðsögn yfirsmiðs)
  • Málað (undir leiðsögn)
  • Dregið í og tengt ýmis tæki og tól […]

Viðhorfskönnun félagsmanna

Á aðalfundi GKG sem haldinn var 2. desember síðastliðinn var viðhorfskönnun félagsmanna til ýmissa þátta starfseminnar kynnt. Í viðhorfskönnuninni kemur margt fróðlegt í ljós, félagsmenn eru sáttari við vellina, Siggi vert fær topp einkunnir, við höldum áfram að bæta æfingasvæðið, félagsmenn eru sáttari við aðgengi að vellinum, barna og unglingastarfið […]

Árgjald GKG – hægt að skipta niður í 10 greiðslur með kreditkorti – Nú bjóðum við félagsmönnum upp á heilsársþjónustu með glæsilegri inniaðstöðu!

Stjórn GKG hefur ákveðið árgjald í klúbbinn fyrir starfsárið 2016 sem hér segir:

FLOKKUR VERÐ
67 ára og eldri 64.000 kr.
Einstaklingar 25 ára til og með 66 ára 94.700 kr.
Einstaklingar 19 ára til og með 24 ára 47.350 kr.
Börn og unglingar 11 ára til og með 18 […]

Guðmundur Oddsson lætur af störfum, sæmdur gullmerki GSÍ

Guðmundur Oddsson, formaður GKG til 10 ára ákvað að gefa ekki aftur kost á sér í embætti á aðalfundi GKG sem haldinn var miðvikudaginn 2. desember í Smáranum.

Guðmundur getur verið stoltur af framgangi klúbbsins þann tíma sem hann hefur verið formaður. Gríðarlegar breytingar hafa átt sér stað. Völlurinn hefur tekið […]

Go to Top