Hafliði Skúlason starfsmaður GKG sem er nú að ljúka námi í Elmwood College í Skotlandi þar sem hann hefur lagt stund á nám í golfvallafræðum var á laugardaginn veitt hæsta viðurkenning sem The Royal and Ancient Golfclub of St.Andrews veitir á hverju ári. Hafliði er eini European Scholarship styrkþeginn sem R&A styrkir á þessu ári.
Hafliði var að sjálfsögðu mættur í Skoskum klæðnaði Skotapilsi af Black Watch gerð. Aðspurður sagði Hafliði "Það var magnað að stíga fæti inn í helgasta (og lokaðasta) musteri Golfsins; Klúbbhús Royal and Ancient. Ekki það að ég hafi sóst eftir því, heldur var mér bara boðið. Ljósmyndatökur eru stranglega bannaðar innandyra svo ekki voru teknar neinar myndir nema af innanbúðarmönnum til notkunar í kynningarstarfi R&A. Þetta er lifandi safn. Ég sá ekki bara fiðurboltana frægu, Golfkylfur Old Tom Morris og alla bikarana heldur svo margt margt annað. Heyrði fullt af sögum. Þetta var mjög áhugavert og skemmtilegt."
Meðlimir Royal and Ancient eru 2400 talsins og þar af eru 1200 þeirra sem búa utan Bretlandseyja. Enginn biðlisti er í klúbbinn þar sem væntanlegum meðlimum er eingöngu boðin innganga. Flestir félagsmenn koma bara einu sinni til tvisvar á ári.