Birgir Leifur hefur náð að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun í morgun. Síðustu 9 holurnar hefur hann leikið á 2 höggum undir pari (2 fuglar og 7 pör) og því á 2 höggum yfir pari eftir 15 holur. Einungis um helmingur keppenda er farinn af stað og því með öllu óljóst hver staðan verður í lok dagsins.