Bændaglíma GKG 2010 fer fram laugardaginn 2. október næstkomandi.
Leikin verður bændaglíma með gamla laginu, þ.e. bændur velja í lið og verður leikinn punktakeppni með fullri forgjöf. Það liðið sem skilar fleirri punktum í hús verður sigurvegari dagsins.
** ATH Mæting er kl 12:00 og verður ræst út af öllum teigum kl. 13:00 **
Skráning á golf.is og eins í síma 897 7773
Bændur þetta árið verða vallarstjórar GKG þeir Guðmundur Árni Gunnarsson og Sveinn Steindórsson.
Leikmenn fara ekki þurrbrjósta út og verður veitingabíllinn á ferðinni á meðan móti stendur.
Eftir að leik lýkur verður boðið upp á veislumat að hætti veitingamannsins.
Verð aðeins kr. 3.000 pr. keppanda.