Bændaglíma GKG 2013 fer fram laugardaginn 12. október næstkomandi.

Leikinn verður fjögurra manna Texas scramble. Bændur í ár verða heiðursmennirnir Einar Gunnar Guðmundsson og Jón Kristinn Baldursson.

** ATH Mæting er kl 12:00 og verður ræst út af öllum teigum kl. 13:00 **

Skráning fer fram á golf.is og eins í síma 565 7378. Dregið verður í lið fyrir hring en séu sérstakar óskir um liðsfélaga er hægt að senda póst á gkgproshop@gmail.com

Eftir að leik lýkur verður boðið upp á veislumat að hætti Sigga verts.

Verð aðeins kr. 4.500 á hvern þátttakanda.

Ekki láta þig vanta á lokamót ársins hjá GKG!