Kæru félagar, nú hefur verið opnað fyrir skráningu í síðasta og lang stemmtilegasta innanfélagsmóti ársins, Bændaglímuna!
Skráning frem fram á golf.is.
Upplýsingar um mót
Hin árlega Bændaglíma GKG fer fram laugardaginn 5. október. Um er að ræða síðasta innanfélagmót ársins og það verður öllu tjaldað til. Bændur í ár eru Þórhallur Sverrisson (Draumurinn) og Vernharð Þorleifsson (Venni Páer). Þeir ætla að stýra mótinu og sínum liðum til sigurs. Mulligan sér um matinn
Fyrirkomulag
4 manna texas scramble punktakeppni með fgj.(hámarksforgjöf karla er 36 og kvenna 36, deilt er í 10 í samanlagða leikforgjöf keppenda)
Keppt er í tveimur liðum og sigrar það lið sem er með flestu sameiginlegan punktafjölda, ef leikar enda jafnir þá fara bændur í bráðabana.
Mæting kl 12. (Bændur kynntir, farið yfir leikskipulagið og dregið í lið).
Keppnin hefst kl 13 og er ræst á öllum teigum samtímis. Þeir sem eru skráðir saman á teig spila saman í holli.
Borðhald byrjar um kl 18
Veitt eru fyrir þann ráshóp sem er með flestu punktana, auk þess verða nándarverðaun verða á öllum par 3 holum
Verð á mann 5.800 kr. maturinn innifalinn.
Skráning fer fram á golf.is athugið að liðin skipast eftir því hverjir skrá sig saman á rástíma.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Aldurstakmark er 20 ára!!!
Áfram GKG !