Birgir Leifur byrjar vel í dag á öðrum hring sínum á Open de Volcans mótinu sem nú stendur yfir í Frakklandi.
 Eftir að leik var frestað í gær var Birgir Leifur á -1 höggi undir pari og í 9.-21. sæti. Vegna úrhellisrigningar var leik frestað og héldu þeir sem ekki höfðu lokið leik áfram um 10 leytið í gærmorgun. Fyrri ráshópurinn var síðan ræstur út eftir hádegið og luku þeir leik í gær. Birgir Leifur var í seinni ráshóp og hóf hann ekki leik fyrr en í morgun og fer niðurskurðurinn fram að lokinni þeirri umferð í kring um hádegið. 3. umferð hefst síðan eftir hádegið.
 Birgir Leifur byrjaði vel í morgun með því að fá 1 fugl og 1 örn á fyrstu 2 holunum. Hann er því -3 undir í dag og samtals á -4 höggum undir pari eftir að hafa lokið einungis 3 holum í dag.