Lokið er hellulögn á æfingasvæði GKG en eitthvað hafa nýju motturnar tafist í sendingu. Því er búið að ákveða að opna æfingasvæðið til bráðabirgða yfir helgina og jafnvel eitthvað fram í næstu viku, en búist er við að formleg opnun verði svo fyrir næstu helgi.

 

Beðist er afsökunar á töfunum og þeim óþægindum sem þær kunna að valda.