Aðfaranótt sunnudagsins 14.maí var brotist inní geymslur á svæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og þaðan stolið ýmsu þar á meðal golfsettum frá klúbbfélögum. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar varðandi málið er beint á að hafa samband við GKG eða lögreglu.
Lýsing á settum sem stolið var:
 Pinseeker golfsett með rauðum sköftum, grænn poki. Einnig Ping járn og Adams trékylfur í litlum gráum burðarpoka.
 Cobra golfsett með 1,3,5,7 og 9 tré ásamt járnum og Howson kvennagolfsett. Bæði þessi sett voru í grænum golfpokum og í þeim gallar ofl.