Nýliðanámskeið í næstu viku
Ágæti GKG meðlimur.
Ákveðið hefur verið að bjóða þeim nýliðum sem gengu í klúbbinn í sumar uppá sérstakt nýliðanámskeið. Nýliðanámskeiðið er ætlað þeim kylfingum sem teljast byrjendur, þ.e.a.s. hafa ekki enn náð forgjöf og eru að stíga fyrstu skrefin í íþróttinni. Lágmarksþátttaka í námskeiðinu er 6 manns. Fyrir þá […]
Liðsskipan í unglingasveitir GKG
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í unglingsveitir GKG fyrir komandi sveitakeppni:
Sveit GKG 17-18 ára pilta
Bjarki Freyr Júlíusson
Gunnar Snær Gunnarsson
Guðjón Ingi Kristjánsson
Guðbjartur Örn Gunnarsson
Jón Steinar Þórarinsson
Starkaður Sigurðarson
Liðsstjóri: Birgir Leifur Hafþórsson
Sveit GKG 17-18 ára stúlkna
Erna Valdís Ívarsdóttir
Ingunn Gunnarsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Lovísa Kristín Sigurjónsdóttir
Liðsstjóri: Ragnheiður […]
Tvö boðsmót í vikunni
Ágætu félagsmenn
Vegna misstaka við skipulagningu boðsmóta gerðist það að tvö boðsmót eru skráð á völlinn tvo daga í röð á fimmtudaginn og föstudaginn. Þýðir það að Leirdalurinn verður lokaður mest allan daginn báða dagana. Það er ekki stefna klúbbsins að halda boðsmót svo þétt og biðjum við félagsmenn velvirðingar á þessum mistökum. […]
Fimmta Miðvikudagsmótið á morgun
Á morgun er fimmta Miðvikdudagsmót ársins af sjö. Mæting kylfinga hingað til hefur verið frábær og því hvetjum við alla til að mæta á morgun, enda spáir góðu veðri. Mótið telur að sjálfsögðu í heildarkeppninni, en bestu fjögur mót sumarsins (af þeim sjö sem […]
Sveitakeppnir GSÍ í algleymingi
Þessar vikurnar heldur GSÍ sínar árlegu sveitakeppnir milli aðildarklúbbanna. Keppt er í mörgum flokkum, karla- og kvennaflokkki, unglingaflokkum og öldungaflokki. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur ekki látið sitt eftir liggja og sendir a.m.k. eina sveit til þátttöku í hverjum flokki.
Nú um síðastliðna helgi lauk keppni í 1. deild karla og […]
Sveitakeppnin hafin
Sveitakeppni kvenna í 1. og 2. deild hófst með látum í dag. Guðmundur Friðrik Sigurðsson, formaður mótanefndar GSÍ, setti mótið og var fyrsti leikur GKG-GA. Heimasæturnar unnu þann leik 2-1.
Við bendum á að öll úrslit mótsins verða sett inn í dag á heimasíðu GKG á golf.is (Smellið á klúbbar og […]
Sveitakeppni GSÍ í 1. og 2. deild kvenna um helgina
Um næstkomandi helgi, frá föstudeginum 8. ágúst til sunnudagsins 10. ágúst verður Sveitakeppni í 1. og 2. deild kvenna haldin á vegum Golfsambands Íslands á Leirdalsvellinum. Af þeim orsökum verður völlurinn lokaður stóran hluta úr þessum dögum. Við viljum því benda félagsmönnum á að […]
Óvissuferð GKG kvenna þriðjudaginn 12. ágúst næstkomandi
Þriðjudaginn 12. ágúst n.k. verður óvissuferð GKG-kvenna. Skráning fer fram á töflu í golfskálanum eða með því að hringja í rástímaskráningu 565-7373 eða 897-7773. Mæting er kl. 13:00 á Vífilsstaðavöll við golfskálann. Lagt verður af stað kl. 13:30. Gjaldið er kr. 2.500 og í gjaldinu eru innifalin vallargjöld, rútuferð og […]
Staðan í Miðvikudagsmótaröðinni eftir fjögur mót
Skjalið sem sýnir stöðuna í Miðvikudagsmótaröðinni hefur verið uppfært eftir fjórða mótið í síðustu viku. Fimmta mótið verður síðan haldið miðvikudaginn 13. ágúst næstkomandi.
Smellið hér til að sjá úrslit 4. mótsins og heildarstöðuna eftir fjögur mót.