Kepnni GKGkvenna og GÖkvenna á Vífilsstaðavellinum 15. júlí 2008 – úrslit
Þriðjudaginn 15. júlí 2008 komu GÖkonur í heimsókn til GKGkvenna. Leiknar voru 18 holur á Vífilsstaðavellinum og var um punktamót að ræða. Í mótinu tóku þátt 33 konur frá GKG og 5 konur frá GÖ. Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fjórar efstu konurnar (í punktakeppni) frá hvorum klúbbi mynda keppnislið.
Hægt er að sjá úrslit mótsins með því að smella á „Lesa meira“ hér að neðan.
Næsta mót hjá GKG konum er óvissuferðin þriðjudaginn 12. ágúst n.k. og verður lagt af stað frá Vífilsstaðavelli kl. 13:30, mæting kl. 13:00. Ferðin verður auglýst nánar eftir verslunarmannahelgi. Listi verður í PROSHOP og er unnt að skrá sig strax.
Kvennanefndin