PlusMinus Optic með tilboð til félagsmanna

PLUSMINUS OPTIC ehf hefur hafið samstarf við GKG þar sem PLUSMINUS sér um sjónheilsu GKG félagsmanna þeim að kostnaðarlausu (sjónmælingar og eftirlit).

 

Einnig fá GKG félagar 12% afslátt af öllu því sem PLUSMINUS hefur upp á að bjóða, en til að mynda skartar búðin mjög flottri SportVision línu sem allir kylfingar […]

By |31.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

4. mót miðvikudagsmótaraðarinnar á morgun

Miðvikudagsmótaröð GKG 2007 heldur áfram á morgun, þann 1. ágúst. Þetta er fjórða mótið af sjö í sumar og þar sem fjögur bestu mótin telja til heildarverðlaunanna þá er þetta síðasti séns fyrir þá sem ekki hafa áður tekið þátt í sumar að byrja og eiga séns á verðlaunum í […]

By |31.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

Uppselt á öll barnanámsskeiðin

Nú er orðið uppselt á öll barnanámsskeiðin á vegum GKG í sumar. Í vor var ákveðið að tvöfalda fjölda námsskeiða með því að bjóða upp á þau bæði fyrir og eftir hádegi. Óhætt er að segja að þessari tilraun hafi verið tekið gríðarlega vel þar sem uppselt hefur […]

By |26.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

Stelpurnar Íslandsmeistarar!

Enn bættist í Íslandsmeistarasafn GKG um helgina þegar stúlknasveitin okkar sigraði í flokki 18 ára og yngri í sveitakeppni GSÍ sem fram fór í Leirunni Stelprunar spiluðu hreint frábært golf um helgina, unnu alla leiki sína örugglega og voru klúbbi sínum til mikils sóma. Stelpurnar sigruðu sveit GR í úrslitum […]

By |23.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

A sveit GR spilar við GV í úrslitum

Sveitakeppni drengja 15 ára og yngri er nú óðum að klárast, en úrslitaleikirnir eru í gangi núna. A sveit GR keppir við GV til úrslita og A sveit GK keppir við A sveit GKJ um þriðja sætið. Leikur hefur tafist í dag, en mikill tími hefur farið í bráðabana um […]

By |22.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

Öðrum degi sveitakeppninnar lokið – breyting á áætlun rástíma

Annarri umferð sveitakeppninnar var að ljúka rétt í þessu og þar með lauk öðrum degi af þremur í þessari stórskemmtilegu keppni. Fjölmargir efnilegir kylfingar hafa sýnt listir sínar og greinilegt er að framtíð keppnisgolfs á Íslandi er hér á ferðum.  Allir sem vilja sjá flott golf spilað eru hvattir til þess að kíkja í Garðabæinn á morgun og fylgjast með úrslitunum.

 

Í fyrramálið fer fram þriðja og seinasta umferð riðlakeppninnar og eru margir riðlar enn í járnum og því mikil spenna um hvaða sveitir komast áfram í úrslitin sem fara fram eftir hádegi á morgun.

 

Mótstjórn vekur athygli á því að búið að er að flýta rástímum seinni umferðarinnar, þ.e. úrslitunum og síðustu umferð í D-riðli, fram um hálftíma frá því sem áætlun sagði. Því er fyrsti leikur eftir hádegi klukkan 13:00 og úrslitaleikurinn hefst klukkan 15:48.

 

Rástíma fyrir morgundaginn, úrslit 1. og 2. umferðar riðlakeppninnar og ýmsir önnur skjöl varðandi keppnina má nálgast með því að smella hér.

 

Smellið á "Lesa meira..." til að sjá stöðuna í riðlum eftir daginn í dag.

By |21.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

1. umferð riðlakeppninnar lokið

Núna rétt áðan lauk 1. umferð í riðlakeppni Sveitakeppni drengja 15 ára og yngri og er síðustu holl að fara út að spila aðra umferðina. Leikur hefur almennt gengið vel í morgun og veðrið hefur verið mjög gott, nánast dúnalogn.  Áætlað er að annari […]

By |21.07.2007|Categories: Fréttir almennt|

Höggleik lokið – rástímar fyrir helgina tilbúnir

Nú er höggleik lokið í sveitakeppni GSÍ í flokki drengja 15 ára og yngri og hefur liðum verið skipt í riðla eftir niðurstöðu hans. Efstu átta liðin úr höggleiknum fara í A og B riðil og í hvorum riðli leika sveitirnar fjórar innbyrðis um röðun í riðlinum. Síðan leika sveitirnar sem unnu riðlana úrslitaleikinn, þær sem urðu í öðru sæti í hvorum riðli leika um þriðja sæti, og þannig koll af kolli.

 

Á morgun fyrir hádegi fer fram fyrsta umferð riðlakeppninnar og eftir hádegi fer fram önnur umferð. Allir að mæta á völlinn og hvetja strákana áfram!

 

Smellið á lesa meira til að sjá riðlaskiptinguna.

 

Smellið hér til að sjá rástíma fyrir helgina, full úrslit höggleiksins og tilkynningu mótsstjórnar.

 

Smellið hér til að sjá frábærar myndir af höggleiknum í dag - smellið á mynd til að sjá hana stærri

By |20.07.2007|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top