Undankeppni International Pairs fór fram á þremur völlum um helgina og var Vífilsstaðavöllur þar á meðal. 17 lið öttu kappi í algerri „bongoblíðu“ í dag og var skorið jafn gott og veðrið. Efstar urður Jónína Pálsdóttir og Hansína Þorkelsdóttir með heila 46 punkta og komust þær því áfram í úrslitin […]
Meistaramót Golfklúbbs Kópavogs og Garðarbæjar verður haldið dagana 8.-14.júlí. Leikið verður á Leirdal. Unglinga- og öldungaflokkar, 3. fl. kv., 4. og 5. fl. karla leika 54 holur og aðrir leika 72 holur.
Nýtt hjá GKG – greiða verður þátttökugjald við skráningu!
Skráning hefst fimmtudaginn 21.júní kl.10 og henni lýkur miðvikudaginn 4.júlí kl. 12.
Nokkur atriði sem hafa ber í huga við skráningu: • Skráning hefst fimmtudaginn 21.júní kl.10 • skráð verður alla virka daga frá kl.08-22 • þátttökugjald er 3.000 kr fyrir 54 holur og 4.000 kr fyrir 72 holur • skráning fer fram í ProShop GKG í síma 897-7272 • einnig er hægt að skrá sig á netfangið mottaka@gkg.is og verður að gefa upp kreditkortanúmer til að skráning sé tekin gild. Gefa þarf upp nafn, kennitölu, forgjöf, flokk, netfang og kreditkortanúmer fyrir greiðslu þátttökugjalds. Þeir sem ekki nota kreditkort geta lagt inn á reikning klúbbsins: 1121-26-7272. kt. 650394-2089. Senda þarf afrit af innleggi á mottaka@gkg.is Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir nema gegn framvísun læknisvottorðs.
Leirdalsvöllurinn verður lokaður 8.-14.júlí. Mýrin verður opin meðan á mótinu stendur. Einungis er heimilt að leika í einum flokki í mótinu. Öldungar 70 ára og eldri, 5.flokkur karla og 3.flokkur kvenna leika af rauðum teigum. Lokahóf verður í skála GKG laugardagskvöldið 14.júlí. Nánar auglýst síðar Allar upplýsingar um mótið verða settar hér inn á síðuna. Einnig er hægt að hringja í síma 565-7373 og fá nánari upplýsingar hjá starfsfólki ProShop. Fyrirspurnum sem sendar verða á mottaka@gkg.is verður einnig svarað.
Íslandsmeistarinn okkar hann Sigmundur Einar Másson náði sér ekki á strik í dag á seinni hring á opna breska áhugamannamótinu, kom inn á 77 höggum eða 6 yfir pari. Hann lék á Royal Lytham vellinum í dag og fann sig greinilega ekki eins vel […]
Fyrsta mót í mótaröð GKG þetta sumarið fór fram í ágætisveðri síðastliðinn miðvikudag, þann 13. júní. Margir GKG-ingar tóku þátt í þessu fyrsta móti af sjö og var skorið ágætt. Flesta punkta í karlaflokki hlaut Hallgrímur Smári Jónsson, heila 40 punkta. Í kvennaflokki bar […]
Sigmundur Einar Másson, afrekskylfingur GKG, tekur nú þátt í opna breska áhugamannamótinu en það er eitt allra stærsta áhugamannamót í heimi. Sigmundur, eða Simmi eins og við GKG-ingar þekkjum hann, spilaði flott golf í dag og kom inn á tveimur högggum undir pari. Hann […]
Á dögunum þegar nýi Leirdalsvöllurinn var tekinn í notkun þá var gefin út ný forgjafarröðun á holurnar 18. Ýmsar breytingar voru gerðar á fyrri röðun og hafa margir félagsmenn velt vöngum yfir henni og fundist hún beinlínis vitlaus.
Vegna þessa þá vill vallarnefnd koma þeim skilaboðum áleiðis að við þessa forgjafarröðun var farið eftir nýlegum viðauka EGA reglanna um forgjafarmál. Vill vallarnefnd benda kylfingum á að ekki er lengur talað um erfðileikaröð holanna, heldur forgjafarröðun. Holunum er ekki endilega raðað eftir erfiðleikastigi heldur eftir því hvernig dreifing auka forgjafarhögga verði sem sanngjörnust fyrir alla kylfinga, hvort sem þeir eru háforgjafar eða lágforgjafarkylfingar. Erfiðleikastig er vissulega einn þáttur í röðuninni, en alls ekki sá eini eins og flestir kylfingar halda.
Ýtið á „Lesa meira“ til þess að sjá þennan viðauka við EGA reglurnar.