Opna GKG – Spilað upp í Leirdal

Nú er loksins komið að því!

Næstkomandi laugardag, þann 9.júní 2007 verður Opna GKG mótið haldið með pompi og prakt. Mótið verður stórglæsilegt og er sögulegt fyrir þær sakir að þá verður í fyrsta skipti spilað upp í Leirdalinn. Vallarstarfsmenn hafa unnið hörðum höndum við […]

By |04.06.2007|Categories: Fréttir almennt|

Reglunámskeið GKG

Miðvikudaginn 6. júní kl. 18:00 verður Kjartan Bjarnason, landsdómari og dómari GKG, með reglunámskeið í golfskálanum. Þar fer hann yfir helstu lög og reglur sem allir eiga að fara eftir þegar golf er spilað, útskýrir flókin atriði og fleira. Allir sem vilja skerpa á þekkingu sinni eru boðnir velkomnir. Aðgangur […]

By |04.06.2007|Categories: Fréttir almennt|

Ottó bestur GKG-inga á Korpunni

Ottó Sigurðsson, atvinnukylfingur GKG, varð efstur af þeim kylfingum sem kepptu fyrir hönd GKG í 2. móti Kaupþingsmótaraðarinnar sem fram fór í slæmu veðri á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur um helgina.

 

Ottó spilaði hringina tvo, en sá þriðji var felldur niður, á 74 og 78 höggum, […]

By |04.06.2007|Categories: Fréttir almennt|

Rás2 Open

Eitt stærsta mót sumarsins, Rás2 Open var haldið hér á Vífilsstaðavelli í gær. Ekki viðraði vel á kylfinga, en mikið rok og rigning setti mark sitt á mótið. Menn létu þó veðrið ekki aftra sér og fjölmenntu í Garðabæinn til að spila Texas Scramble og berjast um einhver hinna fjölmörgu verðlauna sem í boði voru.

 

Smellið á „Lesa meira“ til að skoða lista yfir vinningshafa.

 


By |02.06.2007|Categories: Fréttir almennt|

Úrslit innanfélagsmótsins um helgina

Síðastliðinn laugardag fór fram vormót GKG í blíðskaparveðri. Háð var punktakeppni með og án forgjafar og fóru leikar sem hér segir (hægt er að nálgast allan listann undir "mótaskrá" á www.golf.is):

 

Punktakeppni með forgjöf:
1. Þorvaldur E Sigurðssson 40 punktar
2. Þorvaldur Ingi Jónsson 37 punktar
3. Sigurfinnur Sigurjónsson 37 punktar

 

Punktakeppni […]

By |29.05.2007|Categories: Fréttir almennt|

Innanfélagsmót á laugardaginn

Á laugardaginn, 26.maí næstkomandi, verður fyrsta mót sumarsins hjá GKG. Mótið er aðeins fyrir GKG félaga og leiknar verða 18 holur með punktafyrirkomulagi. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti með og án forgjafar og einnig verða nánadarverðlaun á öllum par 3 holunum.

By |22.05.2007|Categories: Fréttir almennt|

Kvennatímar kvennanefndar GKG

GKG KONUR ATHUGIÐ !!

Allar konur sem ætla að spila á þriðjudaginn verða að skrá sig hjá Ingigerði á skrifstofunni. Hringja í síma 565-7373 og velja 1, og biðja um skráningu í kvennatímann þriðjudaginn 22. maí 2007 fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 22. maí. Einnig er hægt að senda email á […]

By |21.05.2007|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top