Styttist í opnun

Það styttist í sumarið hjá GKG en flatirnir líta vel út eftir fyrsta slátt. Vallarstarfsmenn hafa staðið í ströngu undanfarna daga við hin ýmsu vor-verk en það er fjölmargt sem þarf að huga að áður en völlurinn er opnaður. Vallarstjóri GKG hefur ekki gefið út hvenær á að hleypa […]

Einstök stemmning á Herrakvöldi GKG 2006

Það var troðfullt á Herrakvöldi GKG föstudaginn 21.apríl. Mörg voru skemmtiatriðin og frábær stemming. Boðið var uppá glæsilegan þríréttaðan kvöldverð en í aðalrétt voru humarfylltar grísalundir. Afeksnefnd klúbbsins vill skila þakklæti til allra sem lögðu hönd á plóginn tl þess að gera þetta kvöld sem glæsilegast.

Hlökkum til að sjá […]

Reglufundur GKG

Nú fer að styttast í sumarið og er afar mikilvægt fyrir leikmenn að rifja upp golfreglurnar. Fimmtudaginn 4 .maí kl. 18.00 verður haldinn fyrsti reglufundur GKG í sumar. Þórður Ingason dómari mætir og fer yfir helstu reglurnar. Nýliðar jafnt sem lengra komnir eru velkomnir.  Við hvetjum sem flesta til að […]

Samstarf við GS í Keflavík

GKG og GS hafa gert samstarfssamning fyrir sumarið 2006.

Golfklúbbur Suðurnesja er einn af þekktustu völlum landsins og hafa fjölmörg Íslandsmót farið þar fram, nú síðast árið 2005. Leiran er skemmtilegur 18 holu völlur sem liggur við sjóinn og er því oft góður snemma á vorin. Síðustu ár hefur Leiran verið í frábæru ástandi og hvetjum við alla félagasmenn að nýta þetta tækifæri og leika þennan góða golfvöll.

By |03.04.2006|Categories: Fréttir almennt|

Samstarfsklúbbar GKG

Tilkynning til félagsmanna GKG

 

Það er mikið gleðiefni að tilkynna ykkur að Strandarvöllur á Hellu hefur bæst í hóp okkar samstarfsklúbba og hefur sá samningur tekið gildi frá og með deginum í dag. Fyrir árið 2006 hefur nú þegar verið gengið frá samninum við golfklúbba GOS og GHR. Samningar standa yfir við GL og GÞ um að félagsmenn GKG geta leikið án endurgjalds sumarið 2006. Upplýsingar um niðurstöðu þeirra samninga verða kynntar á næstunni. Vellirnir sem búið er að semja um eru Svarfhólsvöllur á Selfossi og Strandarvöllur á Hellu.

Félagsfundur GKG

GKG hélt félagsfund í síðustu viku og mættu þangað 82 félagar.

Þar var í fyrsta sinn sýnt nýtt kynningarmyndband GKG um starfsemi klúbbsins. Stjórn GKG hefur ákveðið að fjölga félögum í 1.600 fyrir sumarið. Þetta þýðir að um 80 laus pláss eru nú í klúbbnum. Þá er vel hugsanlegt að hægt verið að fjölga félögum enn frekar á næstu árum eftir að 9 holu völlurinn í Leirdal verður tekinn í notkun.

Góð mæting á félagsfund

Mjög góð mæting var á almennan félagsfund sem haldin var í golfskála GKG í kvöld.  Forsvarsmenn félagsins undir stjórn formannsins Guðmundar Oddsonar lýstu þar því sem búið er að vera að undirbúa varðandi bæði æfingasvæði og golfskála en einnig var farið yfir annan undirbúning fyrir sumarstarfið.  Í upphafi fundarins var […]

By |17.03.2006|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top