Úrslit úr fjórða mótinu á Svalamótaröð GKG 2008
Í dag fór fram fjórða og síðasta mótið á Svalamótaröð GKG 2008 og áttust þar við 6 stúlkur og 16 drengir á aldrinum 6-12 ára. Keppt var í tveimur aldursflokkum fyrir bæði stráka og stelpur, 9 ára og yngri og 10-12 ára og má sjá efstu 3 sætin í hverjum flokki hér að neðan. Heildarúrslit má síðan sjá með því að smella á "Nánar ..." hér að neðan.
Styrktaraðilar okkar veita vegleg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki í hverju móti auk þess sem allir fá Svala í teiggjöf. Sigurvegar geta vitjað vinninga sinna í afgreiðslu ProShop á opnunartíma klúbbsins frá og með fimmtudeginum 14.ágúst. Tilkynning um dagsetningu lokahófsins verður svo send út innan tíðar.

Ottó Sigurðsson úr GKG sem tekur nú þátt í sðínu þriðja atvinnumannamóti í Portúgal náði sér ekki á strik á öðrum hring mótsins í dag þrátt fyrir að hafa verið að eiga nokkuð góð upphafshögg. Járnahöggin voru hinsvegar ekki að gera sig […]