Slide

Lokastaðan í Hole In One mótaröðinni 2008

holeinoneHole In One mótaröð GKG er nú lokið og fór verðlaunaafhending fram á lokahófinu okkar síðastliðinn þriðjudag og má sjá efstu 3 sætin í hverjum flokki hér að neðan. Hole In One veitti glæsileg verðlaun, gjafabréf að upphæð 12.000, 9.000 og 6.000 fyrir 1.-3. sæti í eldri flokkunum tveimur og síðan La Jolla kylfur fyrir öll sæti í yngsta flokknum. Við þökkum öllum þátttakendum sem og Hole In One fyrir höfðinglegan stuðning við mótaröðina í ár.

By |21.09.2008|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Ingunn og Guðjón Ingi með framúrskarandi árangur

Síðastliðinni þriðjudag, 16.september, var haldið lokahóf barna- og unglingastarfs GKG fyrir sumarið 2008. Þar voru veitt verðlaun fyrir árangur sumarins og fyrir mótaraðirnar okkar auk þess sem boðið var upp á pizzu.

Það voru þau Ingunn Gunnarsdóttir og Guðjón Ingi Kristjánsson sem fengu verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur að þessu sinni. Ingunn átti frábært tímabil þar sem hún náði m.a. að sigra á fyrsta stigamóti fullorðinna á Hellu í vor. Hún sigraði síðan í 3 stigamótum unglinga, varð íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga og varð einnig klúbbmeistari kvenna GKG. Guðjón Ingi varð í öðru sæti í íslandsmóti unglinga í höggleik og spilaði þar fyrsta hringinn á 68 höggum. Hann varð síðan í 2.sæti í sveitakeppni unglinga, varð klúbbmeistari GKG og lækkaði forgjöf sína úr 4.0 í 2.5.

Hér að neðan er svo nánara yfirlit yfir alla þá sem fengu verðlaun fyrir árangur sinn í sumar.

By |22.09.2008|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Skráning á vetraæfingar hafin

Nú liggur fyrir skipulag vetraæfinga hjá börnum og unglingum GKG veturinn 2008-2009 og má skoða æfingatöfluna í heild á heimasíðunni hér.
Æfingagjöld verða innheimt í vetur líkt og síðastliðinn vetur. Gjaldið er kr. 22.000.- fyrir þá sem æfa tvisvar í viku og 33.000.- fyrir þá sem æfa þrisvar […]

By |04.10.2008|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Páskabingó GKG – Laugardaginn 21.mars kl.14:00

Unglinganefnd GKG stendur fyrir páskabingói laugardaginn 21. mars kl. 14.00 í golfskála GKG. Þessi viðburður er skipulagður sem partur af almennu félagsstarfi okkar en jafnframt er þetta liður í söfnun afreksunglinganna sem eru að fara í æfingaferð til Essex þann 4. apríl næstkomandi.
 
Margir góðir vinningar verða í boði og verði […]
By |14.03.2009|Categories: Fréttir af unglingastarfi|
Go to Top