Erfið byrjun hjá Ottó í Portúgal
Fyrsti hringurinn hjá Ottó Sigurðssyni í sínu öðru atvinnumannamóti var ekki alveg að ganga upp í dag. Ottó hóf leik í morgun klukkan rúmlega 9 og lék á 84 höggum eða +12 höggum yfir pari vallarins.
Ottó fékk aðeins 7 pör á hringnum, tíu […]
Kylfingar athugið
Í dag 21. júní til og með miðvikudagsins 23. júní fer fram fíngerð tappagötun á flötum 1, 2, 16, 17 og 18 á Leirdalsvelli.
Á meðan á þessum aðgerðum stendur verða bráðabirgða holur framan við þá flöt sem unnið er á hverju sinni. Þetta er nauðsynleg framkvæmd til að bæta flatir […]
Voræfingar hafnar
Nú eru hafnar voræfingar hjá GKG og má sjá æfingatöfluna með því að smella hér. Allir sem voru skráðir á vetraræfingar getatekið þátt og þarf ekki að skrá sig sérstaklega til þess. Athygli er vakin á því að tuttaspils æfingar verða í Kórnum til 18. maí en eftir […]
Ottó á sínu öðru atvinnumannamóti í Portúgal
Ottó Sigurðsson atvinnumaður í golfi er nú að taka þátt í sínu öðru móti eftir að hann gerðist atvinnumaður síðastliðið haust. Þetta er annað mótið í Backtee mótinu og fer fram á Riba Golfe II vellinum í Portúgal
Ottó hefur leik klukkan 9:14 […]
Skráning hafin á sumaræfingar 2009
Nú er hafin skráning á sumaræfingarnar hjá GKG og er hægt að skrá sig með því að smella hér og þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar um æfingarnarnar og stundatöfluna. Lokað verður fyrir skráningar 29.maí.
Lagt verður á hóflegt skráningargjald, eða 10.000 […]
Ottó +2 yfir eftir fyrri 9 í dag
Ottó lék á +2 höggum yfir pari í dag að loknum fyrri níu holunum. Hann fékk þrjá skolla, fimm pör og einn fugl og er því á samtals +5 höggum yfir pari.
Ottó var +3 höggum yfir pari fyrir daginn í […]
Skráningum á sumaræfingar lokið – Metþátttaka
Nú er lokið skráningum á sumaræfingar hjá börnum og unglingum GKG fyrir sumarið 2009. Ríflega 140 krakkar eru skráðir sem er töluvert fleira en síðastliðin sumur. Stundatöflu og hópaskiptingu má sjá með því að smella hér. Enn er hugsanlegt að komast að og ef menn óska […]
Ottó samtals 3 yfir eftir 2 daga
Ottó Sigurðsson er í 30.-33. sæti að loknum tveimur keppnisdögum á þremur höggum yfir pari.
Ottó lék á einu höggi yfir pari í dag en á tveimur höggum yfir pari í gær. Ottó fékk 3 fugla, 11 pör og 4 skolla í […]
Hlynur Þór ráðinn þjálfari
GKG hefur fengið góða viðbót í þjálfarateymi sitt, en Hlynur Þór Haraldsson hefur verið ráðinn í fullt starf sem þjálfari. Hlynur mun sinna barna- og unglingastarfinu, og sömuleiðis þjálfa meistaraflokka og afrekshópa GKG ásamt Derrick Moore. Þess utan mun hann sinna einkakennslu almennum kylfingum. Hlynur er uppalinn […]