Átta ára golfsnillingur
Sigurður Arnar Garðarsson, er aðeins 8 ára og er þegar kominn með 20,7 í forgjöf! Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Sigurð um daginn og úr varð stórskemmtilegt sjónvarpsviðtal sem má sjá hér.
Sigurður Arnar Garðarsson, er aðeins 8 ára og er þegar kominn með 20,7 í forgjöf! Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Sigurð um daginn og úr varð stórskemmtilegt sjónvarpsviðtal sem má sjá hér.
Svalamótaröð GKG er nú lokið og fór verðlaunaafhending fram á lokahófinu okkar síðastliðinn þriðjudag. Allir sem höfðu tekið þátt í einhverju móti fengu viðurkenningu og efstu 3 sætin í hverjum flokki fengu bikara til staðfestingar á frábærum árangri. Unglinganefndin vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra þátttakenda, foreldra þeirra sem og höfðinglegs styrktaraðila okkar, Vífilfells. Viðtökur og jákvæðni bæði keppenda sem og foreldra við þessari mótaröð hvetja okkur til þess að halda áfram á þessari braut í framtíðinni.
Lokastaðan var sem hér segir:
Ottó Sigurðsson endaði á +5 höggum yfir pari eftir fyrsta keppnisdag á Backtee Open sem er hluti af Scanplan Tour og Nordic League mótaröðunum. Mótið sem fer fram í Portúgal er þriðja og síðasta mótið sem Ottó tekur þátt í í þessarri […]
Hole In One mótaröð GKG er nú lokið og fór verðlaunaafhending fram á lokahófinu okkar síðastliðinn þriðjudag og má sjá efstu 3 sætin í hverjum flokki hér að neðan. Hole In One veitti glæsileg verðlaun, gjafabréf að upphæð 12.000, 9.000 og 6.000 fyrir 1.-3. sæti í eldri flokkunum tveimur og síðan La Jolla kylfur fyrir öll sæti í yngsta flokknum. Við þökkum öllum þátttakendum sem og Hole In One fyrir höfðinglegan stuðning við mótaröðina í ár.
Ottó Sigurðsson er nú að leika á sínu þriðja móti í röð á Scanplan Tour sem fraam fer í Portúgal. Mótið sem er þriðja mótið í Backtee Championship fer fram á Riba Golfe II vellinum. Leiknar verða 54 holur (3 dagar) fram […]
Síðastliðinni þriðjudag, 16.september, var haldið lokahóf barna- og unglingastarfs GKG fyrir sumarið 2008. Þar voru veitt verðlaun fyrir árangur sumarins og fyrir mótaraðirnar okkar auk þess sem boðið var upp á pizzu.
Það voru þau Ingunn Gunnarsdóttir og Guðjón Ingi Kristjánsson sem fengu verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur að þessu sinni. Ingunn átti frábært tímabil þar sem hún náði m.a. að sigra á fyrsta stigamóti fullorðinna á Hellu í vor. Hún sigraði síðan í 3 stigamótum unglinga, varð íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga og varð einnig klúbbmeistari kvenna GKG. Guðjón Ingi varð í öðru sæti í íslandsmóti unglinga í höggleik og spilaði þar fyrsta hringinn á 68 höggum. Hann varð síðan í 2.sæti í sveitakeppni unglinga, varð klúbbmeistari GKG og lækkaði forgjöf sína úr 4.0 í 2.5.
Hér að neðan er svo nánara yfirlit yfir alla þá sem fengu verðlaun fyrir árangur sinn í sumar.
Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með þátttökurétt á TCL Classic mótið sem fram fer á Yalong Bay Golf Club í Sanya á Hainan eyju í Kína helgina 15. – 18. mars. Yalong Bay völlurinn er PAR 72 og er 6.540 metra […]
Nú liggur fyrir skipulag vetraæfinga hjá börnum og unglingum GKG veturinn 2008-2009 og má skoða æfingatöfluna í heild á heimasíðunni hér.
Æfingagjöld verða innheimt í vetur líkt og síðastliðinn vetur. Gjaldið er kr. 22.000.- fyrir þá sem æfa tvisvar í viku og 33.000.- fyrir þá sem æfa þrisvar […]
Ottó Sigurðsson hætti leik að loknum fyrsta hring í Portúgal. Ottó spilað afar illa í gær og var þá ekki fullfrískur. Hann ætlaði sér síðan að mæta frískur á teig í morgun en hafði þá versnað og er nú með hita og […]
Um helgina lauk 3. stigamóti ársins í Arion banka mótaröð GSÍ. Leikið var á Strandarvelli við Hellu. GKG kylfingar stóðu sig mjög vel og sigraði Ragnar Már Garðarssson í flokki 15-16 ára, lék á 66 höggum á seinni keppnisdegi og sigraði […]