Sumaræfingar barna og unglinga að hefjast

Sæl öll sömul.
Núna á mánudaginn 6. júní tekur við ný æfingatafla fyrir sumarið.
Smelltu hér til að sjá æfingatöfluna og hópaskipan.
Mæting á æfingar er við æfingasvæðið/pallana, og ef börn eru sótt í lok æfingar skal sækja þangað einnig.
Enn er hægt að skrá sig á æfingar, en […]
Birgir Leifur er á parinu eftir fyrri 9 holurnar á Humewood vellinum í Port Elisabeth í Suður-Afríku. Hann hefur fengið 1 skolla á fjórðu brautinni og fugl á þeirri níundu og sjö pör. Spánverjinn Carl Sunesonm hefur aldeilis verið að gera gott mót […]

Búið er að raða í rástíma fyrir morgundaginn. Þetta er þriðji leikdagur á South African Airways mótinu sem fer fram á Humewood golfvellinum í Port Elisabeth í Suður-Afríku.
Birgir Leifur náði þeim mikilvæga áfanga að komast í gegn um niðurskurð á South African Airways Open mótinu sem fram fer í Port Elisabeth á Humewood vellinum í Suður-Afríku.
Birgir Leifur hefur spilað mjög stöðugt golf í morgun. Hann lauk fyrri 9 holunum á -1 undir pari með því að fá 8 pör og einn fugl á 6. brautinni sem er 130 metra par 3 hola. Birgir færðist því upp stöðutöfluna.