Lokamót GKGkvenna 14. september s.l., úrslit
GKGkonur mættu með góða skapið á Vífilsstaðavöllinn sunnudaginn 14. september s.l. Vegna óvissu um veður var ákveðið að leika eingöngu 9 holur. Leikfyrirkomulagið var Texas Scramble. Um kvöldið var svo lokahóf GKGkvenna, verðlaun afhent og borðaður mjög góður matur. Þrátt fyrir að lokahófið hafi verið opið öllum GKGkonum mættu eingöngu tvær konur sem ekki höfðu verið skráðar í mótið. Í mótið mættu 22 konur.
Smellið á "Lesa Meira" hér fyrir neðan til að sjá úrslit mótsins.
Kvennanefndin þakkar öllum sem hafa stutt okkur í sumar. Þá þakkar nefndin starfsfólki GKG fyrir þeirra samstarf og Gunnari og Hilmari og þeirra fólki fyrir gott og notalegt samstarf í sumar. GKGkonur fylgist með heimasíðu GKG og skráið netfangið ykkar hjá GKG svo hægt sé að senda ykkur tölvupóst um helstu viðburði GKGkvenna.
- Kvennanefndin