Þriðja púttmót vetrarins
Næstkomandi sunnudag, 22.03, verður þriðja púttmót vetrarins haldið í Kórnum.
Spilaðir verða tveir hringir frá kl. 12-15 og telur betra skorið.
Þáttökugjald er 500 kr og er öllum heimilt að taka þátt, sama í hvaða klúbb þeir eru, […]
Námskeið 21.03
Laugardaginn 21. mars verða haldin tvö námskeið fyrir háforgjafarkylfinga.
Námskeiðin verða í Kórnum og eru frá 13:30-14:45 og 14:45-16:00.
Þáttökugjald er 1.000 kr per námskeið.
Afrekskylfingar GKG munu sjá um námskeiðið og renna tekjur af þeim til fjáröflunar þeirra vegna æfingaferðar í vor.
Skráning fer fram á skrifstofu GKG hjá :
Alexander skrifstofustjóra, [email protected] […]
Páskabingó laugardaginn 21. mars klukkan 14:00
Unglinganefnd GKG stendur fyrir páskabingói laugardaginn 21. mars kl. 14.00 í golfskála GKG. Þessi viðburður er skipulagður sem partur af almennu félagsstarfi okkar en jafnframt er þetta liður í söfnun afreksunglinganna sem eru að fara í æfingaferð til Essex þann 4. apríl næstkomandi.
Margir góðir vinningar verða í boði og […]
Nýjar myndir komnar í myndasafnið
Nú eru komnar nýjar myndir frá árinu 2006 í myndasafnið hér á gkg.is. Kennir þar ýmissa grasa og eflaust gaman fyrir félaga að skoða gamlar myndir. Hægt er að nálgast myndasafnið okkar í hlekkjalistanum hér til vinstri eða með því að smella hér. Ef einhverjir luma á gömlum eða […]
Ný námskeið
Sælir félagar, vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við tveimur námskeiðum í viðbót fyrir háforgjafarkylfinga. Þau verða 28. febrúar og 7. mars frá 13:30 – 14:45.Skráning fer fram hjá mér, Alexander, á netfanginu [email protected] eða í síma 565-7373.Námskeiðsgjald er 1.000 kr sem greiðast á námskeiðinu.
Myndasíða GKG tekin í notkun
Í dag var opnað glæsilegt nýtt myndasafn hér á gkg.is. Hægt er að nálgast það með því að smella á "Myndasafn" í hlekkjalistanum til vinstri.
Búið er að setja inn myndi sem teknar voru á klúbbmyndavélina síðastliðið sumar og eru þær allmargar. Einnig hvetjum við félaga að senda inn […]
Félagar athugið
Eins og veðurspáin er næstu daga hefur verið ákveðið að loka inná sumarflatir og teiga. Félögum er bent á að vetrarhringurinn á mýrinni er opinn og verður opinn í allan vetur.
Ef veður leyfir eftir helgina munum við að sjálfsögðu opna aftur inná flatirnar.
Kveðja Vallarstjóri
Miðvikudagsmótaröð GKG 2008 lokið
Miðvikudagsmótaröð GKG 2008 lauk nú fyrir stuttu og eru úrslit ljós. Efstu fimm kylfingar í flokki kvenna og karla hljóta glæsileg verðlaun fyrir árangur sumarsins, en meðal verðlauna eru Yes Pútterar, Titleist burðarpokar og fleiri golfvörur. Verðlaunin verða afhend á lokahófi GKG, Bændaglímunni, eftir rúma viku og því mikilvægt fyrir […]