Birgir Leifur á teig í Belgíu
Birgir Leifur mun hefja leik á Telenet Trophy, á Limburg golfvellinum í Belgíu klukkan 8:10 í fyrramálið. Hann mun hefja leik á 1. teig ásamt frakkanum David Olivier sem náði ekki í gegn um niðurskurð á mótinu um síðustu helgi og […]
Birgir Leifur er nú að halda til Belgíu þar sem hann mun taka þátt í Telenet Trophy golfmótinu sem er liður í Áskorendamótaröðinni og verður haldið á Limburg Golf & Country Club. Mótið hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Skorið er niður eftir 2 daga og því mikilvægt fyrir Birgi Leif að leika vel.
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG verður mikið á faraldsfæti í sumar og hefur ákveðið að taka þátt í 20 mótum fram á haust í Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur tekur þátt í Opna Kasakstan mótinu sem haldið er á Nurtau vellinum í Kasakstan. Hann mun auk þess koma og vera starfandi hér hjá okkur í 2 - 3 vikur að lokinni sveitakeppni GSÍ sem hann mun að sjálfsögðu taka þátt í ásamt öðrum afrekskylfingum GKG.