Kvennanefndin vill minna á hinn venjulega þriðjudagstíma á morgun. Nú er sú nýbreytni að völlurinn er heilar 27 holur og því spila konurnar á níu holu vellinum, Mýrinni.
Skráning fer fram eins og venjulega, með því að hringja inn í rástímaskráningu klúbbsins.
Annað mót í unglingamótaröð GSÍ fór fram á Hvaleyrarvelli, velli Golfklúbbsins Keilis, um helgina. Fjöldi unglinga spilaði þar undir merkjum GKG og stóðu sig með sóma. Einhverjir voru í baráttu um sigurinn í sínum flokki eftir fyrri hringinn en sá seinni var ekki eins […]
Í morgun hófst Opna GKG mótið hér á Leirdalsvelli og markaði það þar með formlega opnun Leirdalsvallar. Kylfingar hafa leikið upp í Leirdal í ágætu veðri í dag og hefur gengið glimrandi vel að halda uppi hraða.
Besta skor dagsins var einn undir pari, 70 högg og komu þrír afrekskylfingar úr GKG inn á því skori: Valgeir Tómasson, Ottó Sigurðsson og Haukur Már Ólafsson. Haukur Már hafði betur gegn hinum tveimur í bráðabana og því hlaut hann verðlaun fyrir besta skor dagsins. Vallarmetið á nýja vellinum er því sem stendur 70 högg.
Smellið á meira til að sjá lista yfir verðlaunahafa. Þeir sem unnu til verðlauna geta sótt verðlaun sín í ProShop GKG í næstu viku
Næstkomandi laugardag, þann 9.júní 2007 verður Opna GKG mótið haldið með pompi og prakt. Mótið verður stórglæsilegt og er sögulegt fyrir þær sakir að þá verður í fyrsta skipti spilað upp í Leirdalinn. Vallarstarfsmenn hafa unnið hörðum höndum við […]
Miðvikudaginn 6. júní kl. 18:00 verður Kjartan Bjarnason, landsdómari og dómari GKG, með reglunámskeið í golfskálanum. Þar fer hann yfir helstu lög og reglur sem allir eiga að fara eftir þegar golf er spilað, útskýrir flókin atriði og fleira. Allir sem vilja skerpa á þekkingu sinni eru boðnir velkomnir. Aðgangur […]
Ottó Sigurðsson, atvinnukylfingur GKG, varð efstur af þeim kylfingum sem kepptu fyrir hönd GKG í 2. móti Kaupþingsmótaraðarinnar sem fram fór í slæmu veðri á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur um helgina.
Ottó spilaði hringina tvo, en sá þriðji var felldur niður, á 74 og 78 höggum, […]
Eitt stærsta mót sumarsins, Rás2 Open var haldið hér á Vífilsstaðavelli í gær. Ekki viðraði vel á kylfinga, en mikið rok og rigning setti mark sitt á mótið. Menn létu þó veðrið ekki aftra sér og fjölmenntu í Garðabæinn til að spila Texas Scramble og berjast um einhver hinna fjölmörgu verðlauna sem í boði voru.
Smellið á „Lesa meira“ til að skoða lista yfir vinningshafa.
Síðastliðinn laugardag fór fram vormót GKG í blíðskaparveðri. Háð var punktakeppni með og án forgjafar og fóru leikar sem hér segir (hægt er að nálgast allan listann undir "mótaskrá" á www.golf.is):
Punktakeppni með forgjöf: 1. Þorvaldur E Sigurðssson 40 punktar 2. Þorvaldur Ingi Jónsson 37 punktar 3. Sigurfinnur Sigurjónsson 37 punktar
Nú er lokið fyrsta stigamóti unglinga á Kaupþingsmótaröðinni 2007 en það fór fram á Strandarvelli við Hellu um helgina. 24 krakkar kepptu fyrir hönd GKG, 16 strákar og 8 stúlkur. Bestum árangri þeirra náði Emil Þór Ragnarsson en hann sigraði […]
Í kvennaspiltímunum næskomandi þriðjudag verður breytt út af vananum og lítið 9 holu mót haldið. Leikin verður punktakeppni og eru verðlaun í boði fyrir góðan árangur auk nándarverðlauna. Allar GKG konur eru hvattar til að koma og skemmta sér á þriðjudaginn.