Innanfélagsmót á laugardaginn
Á laugardaginn, 26.maí næstkomandi, verður fyrsta mót sumarsins hjá GKG. Mótið er aðeins fyrir GKG félaga og leiknar verða 18 holur með punktafyrirkomulagi. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti með og án forgjafar og einnig verða nánadarverðlaun á öllum par 3 holunum.
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur gert samkomulag við Margeir Vilhjálmsson, fyrrum framkvæmdastjóra GR, um ráðgjöf við fyrirhugaða uppbyggingu á athafnasvæði klúbbsins við Vífilsstaði. Þá hefur Margeir tekið að sér framkvæmdastjórn klúbbsins tímabundið, meðan leitað verður nýs manns í það hlutverk. Að beiðni Jóhanns Gunnars […]
Allar konur sem ætla að spila á þriðjudaginn verða að skrá sig hjá Ingigerði á skrifstofunni. Hringja í síma 565-7373 og velja 1, og biðja um skráningu í kvennatímann þriðjudaginn 15. maí 2007 fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn […]