Leirdalurinn opinn
Ágætu kylfingar til hamingju með Leirdalinn
Ágætu kylfingar til hamingju með Leirdalinn GKG-konur mættu flottar og fínar og með góða skapið á golfvöllinn þriðjudaginn 29. ágúst s.l. Veðrið var bara nokkuð gott en erfiðlega gekk að eiga við hattana í rokkviðunum en við skemmtum okkur vel.
Margrét Sæmundsdóttir var kjörin best klædda konan með flottan jarðarfarahatt. Margrét fékk einnig flest atkvæði í kjöri um flottasta hattinn.
Reglur mótsins sáu hins vegar til þess að Bergþóra Sigmundsdóttir fékk afh. viðurkenningu fyrir flottasta hattinn með næst flest atkvæði. Þær fengu einnig snyrtivörur og slæðu.
Í punktakeppninni urðu eftirfarandi úrslit:
Af gefnu tilefni skal það tekið fram að rástímaskráning á Vífilsstaðavöll næstu daga á www.golf.is er eingöngu ætluð þeim sem ætla sér að spila 18 holur og leika framtíðarvöll GKG. þ.e. 1.,2. og 3. braut á Vífilsstaðavelli þá Leirdalsvöll og […]
Þá er ljóst hvaða kylfingar leika í undanúrslitum Holukeppni GKG 2006. Undanúrslitaumferðinni skal vera lokið í síðasta lagi á mánudaginn 11. september Á þriðjudaginn næsta verður því ljóst hvaða tveir kylfingar leika til úrslita í Holukeppninni.
Þeir sem leika í undanúrslitum eru:
Síðasti leikdagur í 8 manna úrslitum er mánudagurinn 4. september.
Allir leikir þurfa að klárast í síðasta lagi á þessum tíma. Úrslit og næstu leikir í 4 manna úrslitum verða síðan birt á þriðjudagsmorgun. Leikir í 4 manna úrslitum þurfa síðan að klárast í síðasta lagi mánudaginn 11. september. Úrslitaleikurinn þarf síðan að spilast ekki síðar er mánudaginn 18. september og Holumeistari GKG verður að lokum krýndur á lokahófi Símamótaraðarinnar sem fram fer samhliða Bændaglímunni sem áætluð er laugardaginn 30. september.
Þeir sem spila í 8 manna úrslitum eru hér að neðan:
Samkvæmt nýafstaðinni könnun hér á GKG.is eru tæp 38% kylfinga sem spila 2-3 sinnum í viku. Fjórðungur þeirra sem greiddu atkvæði spila enn oftar eða 4-6 sinnum í viku. rúm 12% spila golf daglega og um 11% léku golf einu snni í viku eða sjaldnar. Einungis 5% svarenda spilar golf sjaldnar en 1 sinni ´ði mánuði. Hægt er að skoða niðurstöðuna hér að neðan.
Ný skoðanakönnun er komin á síðuna þar sem spurt er um viðhorf félagsmanna til opnunar Leirdals.
Miðvikudaginn 6.september n.k. mun GKG opna nýja golfvöllinn í Leirdal í nokkra daga. Ákveðið hefur verið að gefa fólki kost á að prófa nýja völlinn áður en veturinn skellur á. Leikinn verður framtíðar 18.holu völlurinn þ.e.a.s. fyrstu þrjár holurnar eins og þær eru í dag, síðan er leikið uppí Leirdal 9 holur, og leikið er síðan 4.,5.,15.,16.,17. og 18. braut. Í vallarvísi GKG eru nýju brautirnar í Leirdal þar sem mynd er af hverri braut auk upplýsinga um lengdir. Ekki hefur farið fram vallarmat á Leirdalsvelli né heldur hefur forgjafarröðun farið fram.
Laugardaginn 9.september mun síðan fara fram styrktarmót Birgis Leifs Hafþórssonar og Ottós Sigurðssonar.
Þriðjudaginn 29. ágúst n.k. verður venjulegt kvennagolf en konur eru hvattar til að mæta í kjólum og með hatta. Leiknar verða 9 holur og veitt verðlaun í lok dagsins. Viðurkenningar verða veittar fyrir smartasta hattinn og kjólinn, nándarverðlaun á 2. og 4. […]
Sveitakeppni öldunga sem staðið hefur yfir frá því á fimmtudag lauk í dag. Bæði karla og kvennasveitirnar stóðu sig betur en nokkurn tíma áður og er það gleðiefni.
Kvennaliðið stóð sig vel og lauk keppninni með sigri á sveit GA 2-1 og tryggðu sér þar með 7. sætið eftir að hafa […]
Vífilsstaðavöllur verður lokaður frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00 á föstudeginum 25. ágúst veggna boðsmóts Rásar-2 og RUV. Völlurinn verður síðan opinn laugardag og sunnudag þar sem ekkrt opið mót fer fram þá helgi.
Við viljum benda félagsmönnum okkar á samstarfsklúbba okkar.