Slide

GKG í dómgæslu á smáþjóðarleikunum

Alþjóðadómarinn okkar hann Bergsveinn Þórarinsson var einn af dómurum smáþjóðarleikanna í golfi. Hér er skemmtileg mynd af kappanum þar sem hann stillir sér upp með lukkudýri leikanna (Bergsveinn er þessi til hægri ;-). Það er eftirtektavert hve blómlegt starf mótanefndar er og hve öflugt dómarateymið okkar en GKG dómari verður […]

Hjóna og para keppni GKG

Þá er að koma að einu skemmtilegasta móti sumarsins en það verður haldið laugardaginn 13. júní. Um er að ræða hjóna og parakeppni GKG.

Leikfyrirkomulagið er betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins telur á holu. Um er að ræða innanfélagsmót en makar úr öðrum klúbbum eru þó velkomnir.

Mótsgjaldið er […]

Sumaræfingar barna og unglinga í GKG – hópaskipan

Sæl og blessuð, viljum minna á að sumaræfingarnar hjá okkur í GKG hefjast á mánudag n.k., 8. júní.

Smelltu hér til að skoða æfingatöfluna og hópaskipan.

Mæting er ávallt við æfingasvæðið hjá skotpöllunum.

Æfingar eru þrisvar í viku, 1x púttæfing, 1x stutta spil (einnig spil á litla velli), 1x sveifluæfing. Að auki er opin […]

Undankeppni Holukeppni GKG næsta sunnudag

Skráning er hafin í hinu árlegu holukeppni GKG en mótið er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, ekkert síður kylfingar með háa forgjöf.

Í holukeppni með forgjöf er það […]

Flottur árangur ungra kylfinga í Skotlandi

Sigurður Arnar Garðarsson og Elísabet Ágústsdóttir úr GKG hafa verið að keppa ásamt öðrum íslenskum krökkum í Skotlandi undanfarna daga á US Kids Evrópumótinu og stóðu sig mjög vel.

Elísabet hafnaði í 2. sæti, en Ólöf María Einarsdóttir úr GHD sigraði í þeirra flokki, 15-18 ára stúlkna. Sigurður Arnar keppti í […]

Aron Snær, Sigurður og Alma á verðlaunapalli um helgina

Mótaraðir GSÍ fóru af stað um helgina þegar Eimskipsmótaröðin var leikin í Leirunni og Íslandsbankamótaröðin á Skaganum.

Okkar fólk náði ágætum árangri, en Aron Snær Júlíusson hafnaði í þriðja sæti á Eimskipsmótaröðinni eftir að hafa leitt mótið eftir tvo fyrstu hringina.

Á Íslandsbankamótaröðinni náði Sigurður Arnar Garðarsson 2. sæti í flokki 14 […]

Sigurður Arnar og Elísabet keppa á US Kids Evrópumótinu

Sigurður Arnar Garðarsson og Elísabet Ágústsdóttir, kylfingar úr GKG, hefja keppni í dag á US Kids Evrópumótinu í Skotlandi. Leiknir verða þrír hringir og ráðast úrslitin því á fimmtudag. Einnig leika á mótinu Ólöf María Einarsdóttir GHD, Arnór Snær Guðmundsson GHD, Kristófer Karl Karlsson GM og Kjartan Óskar Guðmundsson NK.

Eftir […]

Stelpugolf á vegum PGA á Íslandi á mánudaginn í GKG

Mánudaginn 25. maí verður Stelpugolf haldið á vegum PGA á Íslandi á svæði GKG við Vífilsstaði. Stelpugolf var haldið í fyrsta sinn vorið 2014 og tókst afar vel til og vonandi verður Stelpugolf árlegur viðburður.

Frí golfkennsla verður fyrir konur á öllum aldri. Hægt verður að koma hvenær sem er á milli […]

By |22.05.2015|Categories: Fréttir|

Spilakennsla í boði hjá Ólafi Birni atvinnukylfingi

Ólafur Björn Loftsson, atvinnukylfingur sem gekk nýverið til liðs við okkur í GKG, býður uppá spilakennslu fyrir kylfinga næstu vikur, allt til 5. júní. Ólafur Björn, sem er fyrrum Íslandsmeistari hefur undanfarin ár keppt sem atvinnukylfingur víðsvegar um heiminn og hefur mikla reynslu til að miðla til kylfinga. Spilakennslan fer fram í […]

By |19.05.2015|Categories: Fréttir|

Opnun valla GKG 2015

Vallarstjóri GKG, Guðmundur Árni Gunnarsson hefur ákveðið að opna velli GKG sunnudaginn 17. maí kl. 08:00. Þeir aðilar sem mæta á vinnudag GKG, laugardainn 16. maí milli kl. 10:00 og 13:00 hafa forgang á að spila völlinn á sunnudeginum. Vallarstjóri hefur ákveiðið að opna upp í Leirdalinn líka þannig að […]

Go to Top