Fyrsta mótinu á barna og unglingamótaröð GSÍ, Skechers mótinu, lauk í gær á Hlíðavelli. Alls tóku 140 börn og unglingar þátt í mótinu og léku listir sínar á Hlíðavelli yfir 3 keppnisdaga. Erfiðar og krefjandi aðstæður voru á fyrsta keppnisdegi en ágætis veður bæði á laugardag og sunnudag. Einnig fór fram fyrsta mótið á Áskorendamótaröðinn og var þátttaka góð þar sem 54 kylfingar léku Bakkakot í fínu veðri.
Dagur Fannar Ólafsson (15-16 ára flokkur) og Breki G. Arndal (17-18 ára flokkur) sigruðu báðir í fyrsta sinn í sínum flokkum, sem er glæsilegt hjá þeim!
Í Áskorendamótaröðinni sigraði Helga Grímsdóttir og margir krakkar náðu flottum árangri. T.d. afrekaði Stefán Jökull það að leika 12 holur í röð samtals á parinu!