Gleðilegt ár kylfingar

Nú er jólahátið að klárast og stendur unglinganefndin fyrir dósasöfnun.

Við viljum biðla til ykkar um að gefa tómar flöskur og dósir til handa unglingum sem eru að safna fyrir æfingaferð til Spánar í vor.

Þið komið tómum umbúðum í plastpoka og setjið pokanna við gám sem er við vélageymsluna okkar hjá æfingasvæðinu.

Ef engin er á svæðinu þá er óhætt að skilja pokanna eftir við gáminn sem er þversum fyrir aftan stóran gám og er hann á hægri hönd þegar keyrt er inn á bílastæðið við æfingasvæðið.

 

Með fyrirfram þökk

Spánarfarar