Nú fer fram Íslandsmótið í holukeppni hjá Golfklúbbi Borgarness, en á morgun verða Íslandsmeistarar krýndir í karla- og kvennaflokki.

Nú eru einungis 8 kylfingar eftir í báðum flokkum og hafa Guðjón Henning Hilmarsson, Egill Ragnar Gunnarsson og Kjartan Dór Kjartansson staðist sig best af okkar fólki og eru komnir í 8 manna úrslit.

Hér má sjá hverjir mætast í leikjunum sem standa yfir núna, en hægt er að fylgjast með framvindunni á golf.is. Gaman að sjá enn einn af okkar ungu kylfingum, sem enn leikur í unglingaflokki, standa sig vel, en Egill Ragnar, sem er á 18. ári, vann sinn riðill og komst áfram. Hann mætir þó félaga sínum úr GKG og gömlum holukeppnishundi, Guðjóni Henning. Spennandi verður að sjá hvernig sú viðureign fer. Kjartan Dór hefur leikið mjög vel og mætir landsliðsmanninum Guðmundi Ágúst Kristjánssyni úr GR.
Leikir í 8-manna úrslitum:
Karlaflokkur:
Guðjón Henning Hilmarsson – Egill Ragnar Gunnarsson
Birgir Guðjónsson – Andri Már Óskarsson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson  – Kjartan Dór Kjartansson
Rúnar Arnórsson – Axel Bóasson

Kvennaflokkur:
Tinna Jóhannsdóttir – Sunna Víðisdóttir
Karen Guðnadóttir – Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Anna Sólveig og Signý sitja hjá.

 

Mynd af Agli Ragnari