Annað mótið í KB Bankamótaröð unglinga sumarið 2006 fór fram á Strandarvelli á Hellu í gær og í dag. 27 krakkar frá GKG tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Eygló Myrra vann í flokknum 14-15 ára stúlkur með 9 höggum (73-75) en hún vann einnig fyrsta mótið. Alex Freyr varð síðan í öðru sæti í flokki 13 ára og yngri stráka (80-73). Helgi Ingimundarson varð 5 í flokki 14-15 ára drengja og Guðjón Ingi varð einnig 5 í flokki 16-18 ára drengja. Nánari úrslit má síðan sjá á golf.is og undir “Úrslit” hér til hliðar þar sem búið að merkja árangur okkar krakka sérstaklega. Að lokum er búið að setja inn nokkrar myndir inn á myndasafnið okkar en við auglýsum einnig eftir fleiri myndum sem við getum sett inn.