Laugardaginn 2. febrúar kl. 11.00-13.00 sækjum við dósir og flöskur til þeirra sem vilja gefa í ferðasjóð unglinga í GKG.

Viltu gefa dósir og/eða flöskur? Sendu þá tölvupóst á gretar@gretar.com eða hringdu í 898-8047.

Einnig er hægt að koma með dósir og flöskur til okkar, í áhaldahús GKG hvenær sem hentar (skiljið eftir við græna gáminn innst í horninu til hægri bak við áhaldahúsið).

Takk fyrir stuðninginn!

Fjáröflunarnefnd unglinga í GKG