Næstkomandi þriðjudag, þann 20. apríl, verður hinn árlegi félagsfundur GKG haldinn í golfskálanum v/ Vífilstaðaveg. Hefst fundurinn kl. 20:00 og stendur eitthvað fram eftir kvöldi.
Eins og venjan er þegar félagsfundur að vori er haldinn verður farið yfir stöðu mála hjá klúbbnum. Guðmundur vallarstjóri mun einnig fara yfir vallarmálin, framkvæmdir í vetur og horfur fyrir sumarið. Við hvetjum félagsmenn GKG til að mæta á fundinn, sýna sig og sjá aðra og leggja drög að komandi golfsumri.
Stjórn og starfsfólk GKG