Næstkomandi þriðjudag, þann 28. apríl, verður hinn árlegi félagafundur GKG haldinn upp í Golfskála. Hefst fundurinn klukkan 20:00 og stendur eitthvað fram eftir kvöldi.
Eins og ávallt þegar félagafundur að vori er haldinn verður farið yfir stöðu mála hjá klúbbnum, en stjórnendur klúbbsins munu sjá um það. Guðmundur vallarstjóri mun einnig fara yfir vallarmálin.
Við hvetjum alla félagsmenn GKG til að mæta á fundinn, sýna sig og sjá aðra og leggja drög að komandi golfsumri.
Stjórn og starfsfólk GKG