Golfklúbbnum barst ánægjuleg sending í lok síðustu vikur þegar spáný félagsskírteini og pokamerki komu með sendingu upp í golfskála.

Er nú verið að undirbúa sendingu þeirra til félagsmanna og mega þeir félagsmenn sem gert hafa upp félagsgjaldið fyrir árið 2008  því búast við að félagsskírteini og pokamerkin detti inn um lúguna á næstu dögum.

Nú er allt að komast á fullt í undirbúningi fyrir sumarið og er útsending þessi hluti af því. Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast með gkg.is á næstu dögum til að fá frekari fréttir af starfinu og upphituninni fyrir komandi golfsumar.