Á morgun er fimmta Miðvikdudagsmót ársins af sjö. Mæting kylfinga hingað til hefur verið frábær og því hvetjum við alla til að mæta á morgun, enda spáir góðu veðri. Mótið telur að sjálfsögðu í heildarkeppninni, en bestu fjögur mót sumarsins (af þeim sjö sem eru í boði) punktalega séð telja hjá kylfingum.

Fyrirkomulagið er kunnulegt, allir skrá sig á venjulegan rástíma á Leirdalsvöll hvenær sem er dagsins. Mæta í ProShop áður en hringur hefst, skrá sig og fá afhent skorkort gegn mótsgjaldi 1.000 krónur. Kylfingar spila síðan 18 holur með ritara og skila inn skorkorti í ProShop að leik loknum. Frestur til að skila inn skorkorti rennur út á fimmtudagskvöldið. Fyrir þetta einstaka mót er hægt að vinna 3.000 króna boltakort fyrir annað sætið og 5.000 króna inneign í Proshop fyrir fyrsta sæti í hvorum flokki. Vinningshafar síðasta móts geta vitjað vinninga sinna í ProShop, en úrslit síðasta móts er að finna á heimasíðu mótsins á og með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Smellið hér til að sjá úrslit fyrstu tveggja mótanna og stöðuna eftir fjögur mót.