Sveit GKG ásamt Gunnari Páli Þórissyni liðsstjóra og Derrick J. Moore þjálfara.  Á myndina vantar Ara Magnússon.

GKG sendi nú um helgina tvær sveitir í sveitakeppni GSÍ. Karlasveitin lék Leiruna og kvennasveitin lék Garðavöll. Þrátt fyrir erfitt veður tókst okkar kylfingum að sýna sínar bestu hliðar á golfvellinum. Karlasveitin vann alla sína leiki og varð Íslandsmeistari eftir sigur í úrslitaleik gegn sveit Golfklúbbs Setbergs. Kvennasveitin tryggði sér þriðja sætið með sigri á Nesklúbbnum. 

Óskum við báðum sveitum innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur. 

Nánari upplýsingar um úrslit leikja og lokastöðu mótsins má nálgast hér.