Kvennasveit GKG hefur náð frábærum árangri í sveitakeppni kvenna sem fram fer á Leirdalsvelli og endar í dag.

Stúlkurnar okkar gerðu sér lítið fyrir og unnu GKJ í leik um það hverjar myndu spila um 1- 2 sætið.  GKG vann 3/2 og er því nú að ná besta árangri frá upphafi.  GKG og GR leika til úrslita og hefst leikur þeirra um kl. 10:30

Úrslit leikja okkar kvenna í mótinu eru:

GO – GKG  :   GKG vann 4/1

GK – GKG  :   GKG vann 4/1

GKG – GMS:  GKG vann 5/0

GKG – GKJ :  GKG vann 3/2

 

Við óskum stelpunum okkar alls hins besta og hvetjum félaga til aðkoma  og fylgjast með úrslitaleiknum sem er í gangi núna