Áætlun um starf kvennanefndar GKG sumarið 2008

Kvennanefnd 2008 skipa:

 

Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður sími: 565-6529 og 691-0633, bergthora.sigmundsdottir@tmd.is; bergthorasig@internet.is,
Erla Leifsdóttir sími: 659-7908 erla@bilasmidurinn.is
Signhild Borgþórsdóttir sími: 695-7929 signhild@uu.is
Sesselja Magnea Matthíasdóttir sími: 848-7171 smm@hekla.is
Vigdís Ársælsdóttir sími: 861-4463 vigdisa@flugfelag.is

 

Ný kvennanefnd hefur tekið til starfa. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í nefndinni. Við þökkum Ásdísi, Hrefnu, Margréti og Birnu fyrir frábær störf. Starf kvennanefndar sumarið 2008 verður með nokkuð hefðbundnum hætti. Kvennaklúbburinn verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 20. maí til 9. sept., rástímar eru breyttir og eru nú frá kl. 17:00 – 18:50. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því í Mýrinni. Í mótum leikum við 18 holur og verðum þá á Vífilsstaðavellinum að undanskildum mótunum 3. júní og 26. ágúst 2008. Konur verða að skrá sig í þriðjudagstímana með því að senda tölvupóst á gkg@gkg.is eða að hringja í skálann til að skrá sig, s: 565-7373. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag (þriðjudag). Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði nokkuð góður.

 

Greitt er eingöngu fyrir þátttöku í mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500, að undanskildu Sólstöðumótinu – Bleika bikarnum, mótsgjaldið á mótinu 3. júní og 26. ágúst 2008 verður kr. 1.000 og GKGkonur greiða ekki mótsgjald á Vífilsstaðavellinum í vinkvennamóti GKG- og GOkvenna. GÖkonur munu eins og venjulega greiða eitthvað lægra vallargjald 15. júlí 2008 en GKGkonur greiða þá eins og venjulega kr. 1.500. Við þurfum að greiða vallargjald á Urriðavelli þegar við förum þangað. Við munum semja um lægra vallargjald á þeim velli. Þátttökugjald í mótum á Vífilsstaðavellinum verður unnt að greiða í gegnum heimabanka inn á reikning kvennaklúbbsins eða með peningum og verður það tilkynnt nánar fyrir hvert mót.

 

Móta- og skemmtidagskrá kvennaklúbbsins sumarið 2008:

 

Föstudaginn 16. maí Rauðvínskvöldið
Þriðjudaginn 20. maí Fyrsti golfleikdagur
Þriðjudaginn 3. júní 9 holu þriðjudagsmót
Þriðjudaginn 10. júní Vinkvennamót GO og GKG, Urriðavöllur
Föstudagskvöldið 20. júní Opið sólstöðumót kvenna, Bleiki bikarinn
Þriðjudaginn 24. júní Vinkvennamót GKG og GO, Vífilsstaðavöllur
Þriðjudaginn 15. júlí GÖ konur heimsækja GKG konur
Þriðjudaginn 12. ágúst Óvissuferð
Þriðjudaginn 26. ágúst Hatta- og kjólamót
Laugardaginn 13. september Lokamót kvennaklúbbsins
Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 17:00-18:50.

 

Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður 13. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í skipulögðum leiktíma kvennaklúbbsins og framangreindum mótum. Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum. Munið að skila inn skorkortum í sérmerktan kassa kvennaklúbbsins.

 

Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins.

 

Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennaklúbbsins og verður það eins og að framan greinir föstudaginn 16. maí í golfskálanum.

 

Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.

 

Með golfkveðju

Garðabæ 14. maí 2008

Bergþóra Sigmundsdóttir