islandsmeistarar_sveit_2008

Sveitakeppni unglinga 17-18 ára var háð um helgina á Korpúlfsstaðavelli og náði stúlknasveit GKG þar þeim frábæra árangri að landa fyrsta Íslandsmeistaratitlinum á þessu ári fyrir hönd GKG. Það voru aðeins fjögur lið í þessum flokki og því kepptu allir við alla og sigraðir GKG alla sína leiki 2-1 og tryggðu sér þar með titilinn. Piltsveit GKG náði öðru sæti eftir úrslitaleik við A-sveit GR.
Á Flúðum fór síðan fram sveitakeppni 16 ára og yngri og þar varð A sveit GKG í öðru sæti eftir úrslitaleik við A-sveit GR líkt og í eldri flokknum. Í telpnaflokki urðum við svo að lokum í 3.sæti. Sveitir okkar að þessu sinni skipuðu eftirfarandi kylfingar:

Sveit GKG 17-18 ára stúlkna Sveit GKG 17-18 ára pilta
Erna Valdís Ívarsdóttir Bjarki Freyr Júlíusson
Ingunn Gunnarsdóttir Gunnar Snær Gunnarsson
Hrafnhildur Gunnarsdóttir Guðjón Ingi Kristjánsson
Lovísa Kristín Sigurjónsdóttir Guðbjartur Örn Gunnarsson
Liðsstjóri: Ragnheiður Sigurðardóttir Jón Steinar Þórarinsson
Starkaður Sigurðarson
Liðsstjóri: Birgir Leifur Hafþórsson
Sveit GKG 16 ára og yngri drengja
A-sveit B-sveit
Ari Magnússon Daníel Jónsson
Rúnar Örn Grétarsson Pétur Þór Jónsson
Ragnar Már Garðarsson Davíð Ómar Sigurbergsson
Jón Sævar Brynjólfsson Yngvi Sigurjónsson
Pétur Andri Ólafsson Egill Ragnar Gunnarsson
Liðsstjóri: Valgeir Tómasson Liðsstjóri: Jón Guðmundsson
Sveit GKG 16 ára og yngri telpna
Björk Sigurjónsdóttir
Selma Dögg Kristjánsdóttir
Jóna Þórarinsdóttir
Ninna Þórarinsdóttir
Særós Eva Óskarsdóttir
Liðsstjóri: Úlfar Jónsson  

Við óskum Íslandsmeisturum okkar innilega til hamingu með sigurinn og einnig öllum öðrum keppendum okkar til hamingu með glæsilegan árangur. Nokkrar myndir af lokaholunum hjá Íslandsmeisturunum og síðan verðlaunaafhendingunni eru komnar inn í myndasafnið okkar og síðan má sjá nánari útlistun á niðurstöðu einstakra leikja á heimasíðu GR sem héldu mótið í ár.