GKG skartar svo mörgum skemmtilegum kylfingum og gaman að sjá hve mörg hjón stunda sportið saman í klúbbnum okkar. Þeirra á meðal eru þau Kristján og Sesselja Magnea eða Maggý eins og við þekkjum hana best. Þau flottu hjón og miklu vinir eru bæði 69 ára heldri borgarar, búsett í Garðabæ. Kristján er með 17,1 í forgjöf og Maggý 26,6. Hjónin hafa frá mörgu skemmtilegu að segja úr golflífinu og við skulum byrja á að heyra hvers vegna GKG varð fyrir valinu hjá þeim þegar kom að golfinu og hvernig það fer um þau í klúbbnum.

  • Við búum rétt við völlinn, ákváðum að prófa og sjáum ekki eftir því. Félagsstarfið í klúbbnum er frábært og við höfum eignast þar marga vini.

Með vinahjónunum Herði Jóhannessyni og Sigríði Hjaltadóttur.

En hvernig byrjaði þetta allt saman, hvor helmingurinn startaði og hve lengi þurfti sá helmingur að bíða eftir hinum inn í sportið?  Gefum Maggý orðið.

  • Kristján byrjaði að stunda golf fyrst 1985, með hléum þar til hann gekk í GKG 2002. Ég byrjaði í golfi 2004 eftir að hafa gengið hring með vinkonum mínum. Eftir hringinn kom ég heim og sagðist vilja prófa golf. Við höfðum samband við golfkennara hjá GKG og Kristján gerði honum tilboð um að ég fengi 5 tíma í kennslu og ef það kveikti ekki hjá mér áhuga á golfinu þá yrði ekki greitt fyrir kennsluna. Kristján var búinn að bíða eftir sinni konu í 20 ár og vildi ekkert hálfkák þegar hún stóð loks í anddyri sportsins. Kennarinn tók tilboðinu og rest is history.

Svona til að undirstrika kraftinn í okkar konu þá varð Maggý strax hluti af kvennanefnd GKG og var ein af hennar öflugu sprautum fram á þetta ár eða í um það bil 11 ár.

En áfram með spurningarnar. Getið þið orðað það hversu mikils virði það er að eiga golfið saman sem hjón, hér heima og eins þegar kemur að ferðalögum?

  • Það er stórkostlegt að hafa golfið sem sameiginlegt áhaugamál, sérstaklega þar sem við erum bæði hætt á vinnumarkaði og ef við ferðumst eitthvað innanland á sumrin eru golfsettin oftast með í för.

Er einhver uppáhalds staður þegar kemur að því að pakka í ferðatöskurnar og skreppa í golfferð?

  • Nei, en við höfum verið dugleg að fara til Florida með vinafólki okkar, förum á hverju ári og þá er spilað mikið golf. Við höfum líka farið í tvær stórskemmtilegar ferðir með GKG til Islantilla. Annars erum við opin fyrir öllu og höfum farið nokkrum sinnum til Spánar og til Portúgals í skemmtilegar ferðir.

Besti hringur Maggýar, uppáhalds holan á Leirdalnum og uppáhalds kylfan?

  • Besti hringurinn minn er þegar ég vann í styrktar móti Hlyns heitins fyrir þremur árum. Uppáhaldsholan, þær eru eiginlega tvær, sú níunda og sú ellefta. Uppáhaldskylfan mín er chiperinn, hún reynist mér vel í „chippum fyrir utan grínin.

Besti hringur Kristjáns, uppáhalds holan á Leirdalnum og uppáhalds kylfan?

  • Ég held að besti hringurinn minn hér heima hafi verið þegar ég spilaði Leirdalinn á 83 höggum fyrir nokkrum árum. Uppáhaldsholan er sennilega sú tólfta og uppáhaldskylfan mín er ping 3 hybrid, það er hægt að „negla vel“ með henni.

Eftirminnilegasta atvik Maggýar á golfferlinum og það vandræðalegasta?

  • Eftirminnilegustu atvikin eru tvö, annarsvegar Þegar ég sigraði í styrktar mótinu fyrir Hlyn heitinn 2021 og svo líka þegar við Kristján unnum sigur í hjóna- og paramóti GKG sumarið 2018. Vandræðalegasta atvikið mitt úr golfinu gerðist þegar ég tók þátt í mínu fyrsta meistaramóti. Ég sló upphafshögg á fyrstu braut og boltinn fór beint út í runna á vinstri hönd. Ég fór að leita og fann bolta, tók víti en var stoppuð á miðri braut af ræsi því ég hafði tekið bolta frá leikmanni sem var að koma upp 18. braut. Ég hef ekki spilað með hvítum bolta eftir það.

Með vinahjónunum Þóri B. Guðmundssyni og Hafdísi Ingimundardóttur.

Eftirminnilegasta atvik Kristjáns á golfferlinum og það vandræðalegasta?

  • Eftirminnilegasta atvikið gerðist eftir að við hjónin unnum hjóna- og parakeppnina um árið. Eftir þá helgi spiluðum við hring á Leirdalnum, í spjalli við þau sem spiluðu með okkur þá spurði ég hvort þau hafi tekið þátt í mótinu um helgina. Þeirra svar var á þá leið að þau tækju ekki þátt í svona mótum því þetta væru bara mót sem forgjafarsvindlarar ynnu. Það skapaðist smá umræða um þetta og þau spurðu svo hvort við hefðum verið með. Það varð þögn þegar við sögðumst hafa unnir mótið og málið var ekki rætt meir. Vandræðalegasta atvikið mitt er sennilega það þegar ég tók þátt í vinnustaðamóti sumarið 1985 á Korpuvelli. Ég var á teig í grenjandi rigningu og sló upphafshögg, kylfan rann úr hendi minni og fór talsvert lengra en kúlan.

Hvert er drauma GKG holl Maggýar og hvaða utan félagsmaður fengi að vera með í hollinu? 

  • Það væri nú bara þær sem ég væri að spila með hverju sinni, ég get ekki gert upp á milli.

En hvert er drauma GKG holl Kristján og hvaða utan félagsmaður fengi að spila með þeim? 

  • Það væri Hörður Jóhannesson og Þórir B Guðmundsson og svo fengi John Daly að fljóta með.

Þegar kemur að Meistaramóti GKG hvort stendur þá keppins- eða stemingsskapið upp úr og eruð þið á sama stað með það?  

– Stemningsskapið stendur upp úr, en smá keppins er alltaf með. Við erum samstíga þar.

Lumið þið á einhverjum meistaramóts-leynitrixum fyrir okkur hin?

  • Er það ekki bara það að mæta ávallt jákvæð á keppnisstað og ekki láta skorið hafa mikil áhrif á okkur?

Vel mælt! En hvernig fer þetta golfsumar af stað hjá ykkur og hvernig ætlið þið að njóta þess?

  • Það fer vel af stað. Við byrjuðum það með 5 vikum í USA og síðan höfum við verið dugleg að spila Leirdalinn, 10 hringir komnir nú þegar og 1 á Mýrinni, enda vinnan ekki að trufla lengur.

Maggý og Kristján.

Ein spurning hér sem verður að fá að fljóta með. Nú þegar þið hjón eruð orðin heldri kylfingar og spilið nánast daglega saman, eruð þið alltaf bestu vinir að hring loknum?

  • Já það hefur ekkert breyst, við erum alltaf bestu vinir. Einu sinni var samt tæpt á því og nú er það Kristján sem á orðið. Málið er að hún Maggý var eitt sinn kaddý hjá mér í meistaramóti og ég kom inn á 119 höggum. Kaddýinn var ekki látinn mæta daginn eftir og ég spilaði á 92 höggum. Hjónabandið hélst við þessa þolraun og styrktist jafnvel frekar en hitt.

Flottust og hvert er svo uppáhalds nestið í golfpokanum og eruð þið samrýmd þar?

  • Já sammála þar, flatkökur með hangikjöti, hnetur og vatn með steinefnatöflum svona oftast. Svo má ekki gleyma birdie pelanum.

Er mikið rætt um golf ykkar á milli annarstaðar en á vellinum og í kringum hann?

  • Já heldur betur. Flestir vinir okkar eru golfarar og frábært að heyra allar frægðarsögurnar frá þeim, við erum ávallt hógvær.

Einhver fleyg setning um golfið sem þið viljið koma á framfæri við okkur hin?

  • Press‘ann lágann!

Við þökkum Maggý og Kristjáni kærlega fyrir skemmtilegt viðtal og spyrjum þau skemmtilegu hjón að lokum hinnar sígildu lokaspurningar, hvað er lang, lang best við golfið og við GKG?

  • Þetta er sport sem allir geta spilað saman, án tilliti til getu. Það er stemningin í klúbbnum sem stendur upp úr, félagsstarfið, frábær völlur og frábært starfsfólk!

Tekið á móti verðlaunum eftir H&P mót GKG 2. Júní 2018.

 

Sigur Maggýar í stúlkna flokki í höfn í styrktar mótinu fyrir Hlyn heitinn 21. ágúst 2021.