Kvennasveit GKG vann sér inn þátttökurétt með sigri í Sveitakeppni GSÍ á EM klúbbliða, sem haldið er að þessu sinni á St. Sofia golfvellinum í Búlgaríu. Þær Ingunn Gunnarsdóttir, Ragna Björk Ólafsdóttir og Gunnhildur Kristjánsdóttir keppa fyrir hönd GKG, og telja tvö bestu skorin hvern dag, en um þrjá keppnisdaga er að ræða.

Stelpurnar stóðu sig afar vel í dag og eru í 4. sæti af 15 þjóðum, á 2 höggum yfir pari, en Ingunn lék á 76, Ragna á 73 og Gunnhildur á parinu, 71 höggi!

Þegar forgjöf keppenda er skoðuð þá eru þær með níu þjóðir fyrir ofan sig hvað það varðar, en stelpurnar eru með samtals -10,3 í forgjöf. Það eru dönsku stelpurnar í Smörum golf klub sem leiða mótið á 9 höggum undir pari. Þess má geta að þær dönsku eru með samtals +12,6 í forgjöf, ein þeirra með +5,9!

Hér má sjá skorkort GKG kvenna, en upplýsingar um skor í mótinu er að finna hér.