Eitt skemmtilegasta golfmót ársins, Íslandsmót golfklúbba fyrir leikmenn 12 ára og yngri, lauk í dag á Sveinskotsvelli í Keili. Mótið fór fram dagana 14.-16. júlí og var leikið fyrsta daginn hjá GM í Bakkakoti og annan daginn hjá GKG í Mýrinni. GKG tefldi fram þremur sveitum í jafnmörgum deildum, þeirri Hvítu þar sem keppt er um Íslandsmeistaratitil, og í Gulu og Bláu þar sem keppt er um deildameistaratitil. Leikið er með Texas Scramble fyrirkomulagi.
GKG krakkarnir náðu frábærum árangri í mótinu en Hvíta sveitin gerði sér lítið fyrir og tryggvi sér Íslandsmeistaratitilinn eftir æsispennandi lokaleik!
Gula sveitin átti frábært mót og tryggði sér annað sætið eftir jafntefli við GK sem sigraði örugglega í mótinu.
Loks tryggði Bláa sveitin okkar deildameistaratitilinn en strákarnir sigruðu alla sína leiki býsna örugglega.
Svona voru liðin okkar skipuð:
Hvíta sveitin – Íslandsmeistarar golfklúbba
Gunnar Þór Heimisson
Stefán Jökull Bragason
Benjamín Snær Valgarðsson
Arnar Daði Svavarsson
Snorri Hjaltason
Björn Breki Halldórsson
Gula sveitin – 2. sæti
Eva Fanney Matthíasdóttir
Embla Hrönn Hallsdóttir
Bríet Eva Jóhannsdóttir
Lilja Guðrún Gunnarsdóttir
Viktoría Fenger
Bláa sveitin – Deildameistarar
Óttar Örn Sigurðarson
Arnar Heimir Gestsson
Thomas Ásgeir Johnstone
Vilberg Frosti Snædal
Kristinn Sturluson
Framtíðin er svo sannarlega björt hjá GKG, innilega til hamingju öll sömul!
Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri fór fyrst fram árið 2017 og er mótið í ár það fjórða frá upphafi.
Sigurvegarar frá upphafi:
2017: GKG
2018: GS
2019: GS
2020: GKG
Smelltu hér fyrir heildarúrslit og fleira.
Smelltu hér fyrir myndir frá mótinu fyrsta daginn á myndavef GSÍ – gsimyndir.net – Myndirnar tók Sigurður Elvar Þórólfsson / seth@golf.is
Myndir frá lokadeginum er hægt að sjá hér á FB síðu barna- og unglingastarfs GKG.