Ungir og efnilegir kylfingar frá GKG taka þátt í tveimur sterkum alþjóðlegum unglingamótum á Spáni í byrjun mars. Þeir eru allir hluti af landsliðshópi GSÍ.

Fyrra mótið, European Spring Junior 2025, fór fram dagana 1. til 4. mars á Emporda Golf Club – Forest Course í Katalóníu á Spáni.
Seinna mótið, GJG Spanish Juniors International, hefst á fimmtudaginn 5. mars og fer fram á sama svæði, en þá verður spilað á Links Course velli Emporda Golf Club.

Úrslit í European Spring Junior 2025

Flokkur drengja 18 ára og yngri

  • Guðjón Frans Halldórsson +10  –  9. sæti
  • Gunnar Þór Heimisson +17  –  17. sæti
  • Arnar Daði Svavarsson +28  –  24. sæti

Flokkur stúlkna 18 ára og yngri

  • Eva Fanney Matthíasdóttir +32 – 4. sæti

Flokkur 14 ára og yngri

  • Björn Breki Halldórsson +21 – 1. sæti

Við óskum Birni Breka Halldórssyni innilega til hamingju með sigurinn í sínum flokki og öllum okkar kylfingum til hamingju með góðan árangur.

Skilyrði á keppnissvæðinu

Mikil rigning var á svæðinu á mánudaginn, en samkvæmt Andrési þjálfara, sem fylgir okkar keppendum á Spáni, en veðrið var mun betra á þriðjudaginn.

Við sendum okkar kylfingum baráttukveðjur fyrir næsta mót sem hefst á fimmtudaginn!

Fylgjast má með GJG Spanish Juniors International hér:
https://globaljuniorgolflive.com/tournament/gjg-spanish-juniors-international-2025-spain/

 Úrslit European Spring Junior 2025 má finna hér:
 https://globaljuniorgolflive.com/gjgdb/2021liveScoringresponsive.php?tournamentid=313&gender=1&ak=0&