GKG barst í dag glæsileg gjöf frá Trjáræktarstöðinni Kvistar, Reykholti í Biskupstungum. Um er að ræða 400 sitkagrenisplöntur sem einn félagi okkar Eðvald Geirsson kom með núna í hádeginu. Þetta eru tveggja ára plöntur og verða þær kærkomin viðbót við hið mikla trjáræktarstarf sem unnið er í kúbbnum. GKG vill þakka innilega fyrir þenn mikla velhug sem klúbbnum er sýndur með þessari gjöf.
Kveðja stjórn og starfsfólk GKG